- Auglýsing -
Óðinn Þór Ríkharðsson og félagar í Kadetten Schaffhausen héldu áfram í titilvörn sinni í A-deildinni í Sviss í dag. Þeir lögðu BSV Bern í fyrstu viðureign liðanna í undanúrslitum úrslitakeppninnar, 38:29, á heimavelli. Óðinn Þór var markahæstur Kadetten-liða með átta mörk, eitt þeirra úr vítakasti.
Næsti leikur liðanna fer fram í Bern á miðvikudaginn. Í þriðja sinn mætast liðin í Schaffhausen eftir viku. Vinna þarf þrjá leiki til að öðlast sæti í úrslitum.
HC Kriens og Pfadi Winterhur eigast við í hinni viðureign undanúrslita. Liðin eigast við í fyrsta sinn á morgun.
- Auglýsing -



