Blær Hinriksson og félagar í Leipzig kræktu í óvænt stig í heimsókn sinni til hafnarborgarinnar Kiel í dag er þeir gerðu jafntefli við THW Kiel, 28:28, í 29. umferð þýsku 1. deildarinnar í handknattleik. Leipzig er neðst í deildinni og þótti ekki líklegt til þess að gera liði THW Kiel skráveifu að þessu sinni. Annað kom á daginn. Blær og félagar börðust til loka fyrir stiginu þótt það vegi ekki þungt í botnbaráttunni. Munaði ekki síst um góðan leik Tomas Mrkva markvarðar Leipzig sem gerði fyrrverandi samherjum oft gramt í geði.
THW Kiel situr í 5. sæti.
Blær skoraði eitt mark og gaf tvær stoðsendingar. Staffan Peter var markahæstur hjá Leipzig með átta mörk. Austurríkismaðurinn Nikola Bilyk var markahæstur hjá THW Kiel með sex mörk.
Voru ekki með
Hvorki Andri Már Rúnarsson né Viggó Kristjánsson voru í leikmannahópi HC Erlangen í kvöld er liðið tapaði með átta marka mun, 31:23, fyrir HSV Hamburg á PSD Bank Nürnberg ARENA í Nürnberg. Ríflega 7.200 áhorfendur, flestir stuðningsmenn HC Erlangen, fóru vonsviknir heim eftir að hafa lifað í von um spennandi viðureign.
Væntanlega hömluðu meiðsli Andra Má og Viggó frá þátttöku í leiknum.
Einar Þorsteinn Ólafsson var í leikmannahópi HSV Hamburg. Hann kom töluvert við sögu í vörninni og varði m.a. eitt skot auk þess að eiga eina stoðsendingu.
Staðan í þýsku 1. deildinni:


