Gabríel Martinez Róbertsson og handknattleikdeild ÍBV hafa undirritað nýjan tveggja ára samning. Hann er þriðji leikmaður ÍBV á jafnmörgum dögum sem skrifar undir nýjan samning við félagið.
Gabríel er 23 ára gamall hægri hornamaður sem er uppalinn hjá félaginu. Hann hefur tekið stór skref í sínum leik undanfarin ár en á sínum yngri árum lék hann með yngri landsliðum Íslands og er nú aðal hægri hornmaður Eyjaliðsins.
ÍBV lék til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn á síðasta vori. Áfram er greinilega stefnt hátt í Eyjum eins og endurnýjun samninga á síðustu dögum við Garbríel, Dag Arnarsson og Svein José Rivera staðfestir.
Vonir standa ti þess að ÍBV leiki sinn fyrsta leik í Olísdeildinni á árinu 2023 gegn Selfossi á miðvikudagskvöldið í Vestmannaeyjum.
Staðan í Olísdeildunum og næstu leikir.