- Auglýsing -
Meistaradeild Evrópu í handknattleik kvenna – leikir helgarinnar
A-riðill:
CSM Búkaresti 27-30 Rostov-Don (9-13)
- CSM hefur tapað fyrstu tveimur leikjum sínum í Meitaradeildinni á þessari leiktíð en það er versta byrjun þess í sögu sinni í Meistaradeildinni.
- Rúmenska liðið var með slaka sóknarnýtingu í fyrri hálfleik, aðeins um 35%. Þar hafði mikið að segja frammistaða Anastasiiu Laginu, markvarðar Rostov. Hún var með 47 % markvörslu í fyrri hálfleik.
- CSM skoraði aðeins eitt mark á fyrstu 11 mínútum seinni hálfleiks sem gerði það að verkum að Rostov náði 12 marka forystu 22-10.
- Rúmenska liðið náði þó minnka muninn niður í þrjú mörk áður en leiknum lauk en lykilleikmenn liðsins, Cristina Neagu, Barbara Lazovic og Yvette Broch voru langt frá sínu besta að þessu sinni.
FTC 33-27 Podravka (15-15)
- Podravka sem var að vonast eftir sinni bestu byrjun í Meistaradeild kvenna frá tímabilinu 1997/98 hóf leikinn mun betur. Liðið náði snemma þriggja marka forystu.
- Líkt og gegn Buducnost um síðustu helgi þá lék króatíska liðið ekki vel í seinni hálfleik. Þá staðreynd nýtti ungverska liðið sér og náði 10-3 kafla í upphafi seinni hálfleiks.
- Angela Malestein, hollenski hægri hornamaður FTC, skoraði níu mörk og var markahæst í leiknum.
- Eins og áður segir þá hefur króatíska liðinu ekki gengið vel í seinni hálfleik það sem af er í leikjunum í Meistaradeildini. Það er með markatöluna 28-19 í seinni hálfleik úr þessum tveimur leikjum.
Brest 26-23 Esbjerg (13-9)
- Sandra Toft, markvörður Brest, var fyrrverandi samherjum sínum erfið í þessum leik. Hún varði níu skot í fyrri hálfleik og átti stóran þátt að franska liðið fór með fjögurra marka forystu inní hálfleikshléið, 13-9.
- Esbjerg byrjaði vel í seinni hálfleik og náðu 4-1 kafla. Brest svaraði því með fimm mörkum í röð. Aftur var Sandra Toft í aðalhlutverki en hún varði meðal annars tvö vítaköst á þessum kafla.
- Danska liðið reyndi allt hvað það gat að komast inní leikinn á ný og reyndi meðal annars að spila 7 á 6 í sókn en það kom oftar en ekki í bakið á liðinu. Franska liðið skoraði nokkur auðveld mörk.
Buducnost 29-34 Dortmund (15-18)
- Í fyrsta sinn frá tímabilinu 2009/10 er Buducnost án sigurs eftir tvær umferðir.
- Leikurinn var mjög jafn fyrstu 15 mínúturnar þar sem liðin skiptust á um forystu en fljótlega upp úr því skoraði þýska liðið þrjú mörk í röð og komst í 10-7.
- Eftir það hafði Dortmund frumkvæðið til leiksloka.
- 34 mörk er það mesta sem Dortmund hefur skoraði í leik í Meistaradeildinni. Fyrra met var 33 mörk á móti Brest á síðustu leiktíð.
- Alina Grijseels fyrirliði Dormund átti stórbrotna frammistöðu í leiknum. Hún skoraði 11 mörk í 12 skotum.
B-riðill:
Odense 21-27 Metz (13-15)
- Danska liðið byrjað leikinn betur. Frönsku gestirnir náðu að komast yfir í fyrsta sinni yfir á 23. mínútu þegar Camila Micievic kom Metz yfir, 10-9.
- Bruna De Paula skoraði fjögur mörk í röð undir lok fyrri hálfleiks sem gerði að verkum að franska liðið fór með tveggja marka forystu í hálfleikinn.
- Varnarleikur Metz var frábær í seinni hálfleik og áttu leikmenn Odense í miklum erfiðleikum að brjóta hann á bak aftur enda náðu þeir aðeins að skora átta mörk í seinni hálfleik.
- Dione Housheer hægri skytta Odense var markahæst með níu mörk.
- Danska liðinu hefur ekki enn tekist að sigra Metz í Evrópukeppnum. Þetta var þriðji leikur liðanna.
Vipers 34-25 Sävehof (15-11)
- Evrópumeistarar Vipers léku sinn fyrsta heimaleik í Meistaradeildinni síðan í janúar.
- Ragnhild Dahl skoraði fyrsta mark leiksins fyrir Vipers. Eftir það var um algjöra einstefnu að ræða af hálfu norska liðsins.
- Á tuttugustu og fyrstu sekúndu seinni hálfleiks náði Nina Koppang leikmaður Savehof þeim merka áfanga að skora 2.000 mark Sävehof í Evrópukeppni.
- Nora Mørk átti frábæran leik. Hún skoraði 12 mörk.
Krim 26-31 Györ (12-13)
- Krim sem bætti við sig nokkrum leikreyndum leikmönnum í sumar eiga enn eftir að ná í sín fyrstu stig í Meistaradeildinni á keppnistímabilinu.
- Györ-liðið kom mjög ákveðið til leiks og náði fimm marka forystu, 6-1.
- 10 leikmenn skoruðu fyrir Krim og Oceane Sercien þeirra markahæst með 5 mörk.
- Markmenn ungverska liðsins áttu góðan leik. Amandine Leynaud varði átta skot eða um 38% markvörslu og Silje Solberg varði 7 skot eða um 37%
CSKA 34-27 Kastamonu (16-15)
- Ana Gros, sem gekk til liðs við CSKA frá Brest í sumar, var markahæst í rússneska liðinu með 10 mörk
- Gros skoraði fjögur af fyrstu sex mörkum CSKA í seinni hálfleik og hjálpaði liðinu að ná fjögurra marka forystu 22-18.
- Skyttur rússneska liðsins áttu góðan leik en þær Ana Gros, Elena Mikhaylichenko, Polina Vedekhina og Antonina Skorobogatchenko skoruðu samtals 20 mörk.
- Tyrkneska liðið er eitt af þremur liðum í Meistaradeildinni sem enn er án sigurs eftir tvær umferðir. Markatalan er neikvæð um sem nemur 13 mörkum.
- Auglýsing -