- Auglýsing -
Á sunnudaginn, hvítasunnudag, verður leikið í Kórnum til úrslita á Íslandsmóti yngri flokka karla og kvenna í handknattleik. Unglingaráð handknattleiksdeildar HK hefur veg og vanda að mótahaldinu í ár og verður hvergi slegið slöku við, segir í tilkynningu HSÍ.
Leikjdagskrá sunnudaginn 19.maí
4. flokkur kvenna, kl. 12:
Valur – ÍBV.
4. flokkur karla, kl.13.30:
Valur – FH.
3. flokkur karla, kl. 15:
Afturelding – Haukar
3. flokkur kvenna, kl. 17:
Valur – Fram.
Leikirnir verða sýndir í beinni útsendingu á Handboltapassanum.
Athygli er vakin á að verðlaunaafhending fyrir hvern flokk fyrir sig fer fram strax eftir leik. Veitt eru verðlaun fyrir besta leikmanninn, auk silfur og gullverðlauna. Sigurliðið fær bikar til eignar.
- Auglýsing -