- Auglýsing -
Valur varð í dag Íslandsmeistari 4.flokks karla yngri eftir sigur á FH með eins marks mun, 25:24, í æsispennandi leik í Úlfarsárdal þar sem úrslitadagur yngri flokka fer fram.
Staðan í hálfleik var 15:13 Val í vil.
Maður leiksins var valinn Gunnar Róbertsson, leikmaður Vals. Hann átti stórleik og skoraði 10 mörk.
- Auglýsing -