- Auglýsing -
- Auglýsing -

Monthly Archives: September, 2020

Loksins byrjað á Spáni

Spænska 1.deildin í handknattleik karla hófst loksins í gærkvöldi, nærri vikur síðar en gert var ráð fyrir, en ný uppspretta kórónuveirunnar hefur sett strik í reikninginn víða þar í landi. Upphaflega stóð til að flauta til leiks á fimmtudaginn...

Andstæðingar Vals unnu bikarinn- myndband

Rincón Fertilidad Málaga, liðið sem Valur mætir í Evrópubikarkeppni kvenna í handknattleik eftir rúman mánuð varð á sunnudaginn spænskur bikarmeistari í handknattleik. Rincón Fertilidad Málaga vann BM Elche Visistelche, 24:20, í úrslitaleik. Ef frá eru skildar upphafsmínúturnar þá...

Botninn datt úr í síðari

Elvar Örn Jónsson var besti maður Skjern-liðsins þegar það mátti þola tap á heimavelli í kvöld fyrir spræku liði Skanderborg, 31:28, í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik. Elvar Örn skoraði sjö mörk í níu skotum og átti auk þess þrjár...

Danir venda kvæði sínu í kross

Danska handknattleikssambandið hefur horfið frá þeim áformum sínum að ekki verði krýndir bikarmeistarar í handknattleik karla þetta árið. Til stóð að leika til úrslita í vor en því síðan slegið á frest þegar kórónaveiran lék mjög lausum hala ...

Stórliðin í austri hafa bara eitt markmið

Meistaradeild kvenna hefst laugardaginn 12. september og við á handbolti.is ætlum að nota þessa viku í það að kynnast þeim liðum 10 liðum sem við teljum munu berjast um að komast í Final4 úrslitahelgina í Búdapest í maí.  Í...

Íslendingaslagur framundan

Það verður boðið upp á Íslendingaslag í annarri umferð Evrópudeildarinnar í handknattleik karla þegar TTH Holstebro frá Danmörku, sem Óðinn Þór Ríkharðsson  leikur með, mætir þýska liðinu Rhein-Neckar Löwen. Með Löwen leika landsliðsmennirnir Alexander Petersson og Ýmir Örn Gíslason. ...

Markadrottningin fer út í læknisnám

Ragnheiður Tómasdóttir vinstri hornamaður FH og markahæsti leikmaður liðsins á síðasta tímabili leikur ekki með FH í Olísdeildinni sem hefst á föstudaginn. Þetta staðfesti Jakob Lárusson í samtali við handbolta.is í dag.Ragnheiður er að fara til Slóvakíu í læknisnám....

Bergur Elí hættur – Goto án leikheimildar

Hægri hornamaðurinn Bergur Elí Rúnarsson hefur lagt skónna til hliðar og hefur ákveðið að leika ekki með Gróttu í Olísdeildinni í vetur. Hann tilkynnti þjálfarateyminu þetta í lok ágúst.Bergur Elí gekk í raðir Gróttu frá Fjölni fyrir tímabilið en þar...

Breytum gömlum og úreltum viðhorfum

Handknattleikssamband Íslands hóf í dag átakið Breytum leiknum sem miðar að því að breyta gömlum og úreltum viðhorfum innan íþróttahreyfingarinnar gagnvart ungum stúlkum.Markmiðið með átakinu er að bæta ímynd kvennahandboltans og landsliðsins og fá fleiri ungar stelpur til þess að byrja...

„Þetta mál er klúður“

„Í samningi okkar við Perovic var fyrirvari þar sem er kveðið á um að samningurinn taki ekki gildi ef Vinnumálastofnun og Útlendingastofnun veiti ekki nauðsynleg leyfi fyrir komu hans til landsins. Það er á hreinu og tæru,“ sagði Magnús...
- Auglýsing -

Nýjustu fréttir

BM Porriño – Valur, kl. 15

Spænska liðið BM Porriño og Valur mætast í fyrri úrslitaleik liðanna í Evrópubikarkeppni kvenna í handknattleik í Porriño á...
- Auglýsing -