„Staðan á okkur er nokkuð góð. Vissulega er hundleiðinlegt að þurfa annað árið í röð að vera lokaður inni á hóteli áður farið er á stórmót. En við gerum allt til að gera gott úr ástandinu, æfa vel og...
Áfram heldur keppni í Grill66-deild kvenna í handknattleik í kvöld eftir að liðsmenn ungmennaliðs Fram og Gróttu hófu deildarkeppninar á nýju ári í gærkvöld í Framhúsinu.
Í kvöld tekur efsta lið Grill66-deildarinnar á móti ungmennalið Vals. Valsliðið er í fimmta...
Danska úrvalsdeildarliðið Ribe Esbjerg staðfesti fyrir stundu að landsliðsmarkvörðurinn Ágúst Elí Björgvinsson hafi skrifað undir tveggja ára samning við félagið. Tekur samningurinn gildi í sumar og er til tveggja ára.
Fregnin er í samræmi við óstaðfestar fregnir JydskeVestkysten frá í...
Ágúst Elí Björgvinsson landsliðsmarkvörður í handknattleik flytur sig um set innan Danmerkur á næsta sumri samkvæmt frétt JydskeVestkysten frá í gær. Ágúst Elí hefur síðustu tvö ár staðið í marki KIF Kolding en mun flytja sig vestar á bóginn...
Daníel Þór Ingason bættist inn í búbblu íslenska landsliðsins í handknattleik á Grand Hótel í gær eftir að hafa reynst neikvæður að lokinni skimun. Tuttugasti og síðasti leikmaður hópsins er væntanlegur í dag, eftir því sem næst verður komist....
Grótta vann stórsigur á ungmennaliði Fram í kvöld í fyrsta leik ársins á Íslandsmótinu í handknattleik, 35:19, þegar lið félaganna mættust í Grill66-deild kvenna í Framhúsinu í kvöld.
Lið Seltirninga hafði talsverða yfirburði í leiknum frá upphafi til enda og...
Hollenska landsliðið í handknattleik undir stjórn Eyjamannsins Erlings Richardssonar tapaði fyrir sænska landsliðinu með fjögurra marka mun, 34:30, í fyrri vináttuleik liðanna í Alingsås í Svíþjóð í kvöld. Hollenska landsliðið verður með íslenska landsliðinu í riðli á EM sem...
Handknattleikssamband Evrópu, EHF, hefur ákveðið að stytta þann tíma sem líður frá smiti og þangað til leikmenn og starfsmenn liðanna mega taka þátt í Evrópumeistaramótinu úr 14 dögum niður í fimm. Skilyrði er þó að viðkomandi greinist neikvæður í...
Dagur Sigurðsson, landsliðsþjálfari Japans í handknattleik karla, segir að upp hafi komið að minnsta kosti 12 smit innan landsliðshóp Japan eftir þátttöku á móti í Gdansk í Póllandi á milli jóla og nýárs. Staðan hafi verið orði algörlega óviðráðanleg....
Í aðdraganda heimsmeistaramótsins í handknattleik karla sem fram fór í Egyptalandi á síðasta ári skyggði covid á flest annað í aðdraganda mótsins. Landsliðin lokuðu sig flest hver af og bjuggu nánast í einangrun eða sóttkví. Þau sem það ekki...