Þjálfarateymi A-landsliðs kvenna í handknattleik undir stjórn Arnars Péturssonar landsliðsþjálfara hefur valið 20 leikmenn til æfinga fyrir umspilsleiki liðsins um laust sæti á HM 2023 gegn Ungverjalandi í næsta mánuði.
Liðin mætast að Ásvöllum 8. apríl nk. og síðari...
Miðasala er hafin á viðureign Íslands og Eistlands í Laugardalshöll 30. apríl sem verður síðasta leikur landsliðsins í undankeppni EM 2024. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Handknattleikssambandi Íslands í hádeginu þegar opnaði fyrir miðasölu á vefsíðu Tix.is.
Uppselt...
Arnór Snær Óskarsson leikmaður Vals leikur að öllum líkindum í Þýskalandi á næsta keppnistímabili. Samkvæmt heimildum handbolta.is er Arnór Snær undir smásjá Rhein-Neckar Löwen og hafa viðræður átt sér stað á milli hans og félagsins upp á síðkastið.
Samkvæmt...
„Úrslitin og frammistaðan er svekkjandi,“ sagði Snorri Steinn Guðjónsson þjálfari Vals í samtali við handbolta.is í gærkvöld eftir að lið hans tapaði fyrir Frisch Auf! Göppingen með sjö marka mun, 36:29, í fyrri viðureign liðanna í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar...
Að vanda hefur Handknattleikssamband Evrópu tekið saman syrpu með fimm glæsilegum mörkum eftir síðustu umferð Evrópudeildar karla í handknattleik sem fram fór í gærkvöld. Tveir Íslendingar eru í hópi þeirra fimm sem skoruðu eftirtektarverð mörk í leikjum fyrri umferðar...
„Mínir menn léku mjög góðan varnarleik auk þess sem markvarslan var einnig mjög góð enda var samvinnan þar á millli til fyrirmyndar. Ég tel þessi atriði hafa lagt grunninn að sigri okkar,“ sagði Markus Baur þjálfari Göppingen á blaðamannafundi...
Óttast er að Benedikt Gunnar Óskarsson leikmaður Vals hafi tognað í nára í síðari hálfleik í viðureign Vals og Frisch Auf! Göppingen í Origohöllinni í gærkvöld í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í handknattleik karla. Sé svo verður Benedikt Gunnar væntanlega...
Til stendur að leikmenn KA/Þórs sækir nýkrýnda bikarmeistara ÍBV heim í kvöld og leikinn verði viðureign sem tilheyrir 15. umferð Olísdeildar sem að öðru leyti fór fram í byrjun febrúar. Setji veður ekki strik í samgöngur stendur til að...
Lærisveinar Guðmundar Þórðar Guðmundssonar í Fredericia Håndboldklub unnu Ribe-Esbjerg með fjögurra marka mun, 33:29, á heimavelli í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik í gær. Einar Þorsteinn Ólafsson átti eitt markskot sem geigaði og var einu sinni vísað af leikvelli en...
Hildur Guðjónsdóttir skoraði 13 mörk í kvöld fyrir FH þegar liðið vann öruggan sigur á ungmennaliði HK í viðureign liðanna í Grill 66-deild kvenna í handknattleik, 35:23. Leikurinn fór fram í Kórnum í Kópavogi. Yfirburðir FH-inga voru miklir. Sextán...