- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Fyrsti úrslitaleikur Vals og ÍBV stendur fyrir dyrum

Fyrsti úrslitaleikur Vals og ÍBV um Íslandsmeistaratitil kvenna í handknattleik fer fram í dag í N1-höllinni á Hlíðarenda. Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson dómarar flauta til leiks klukkan 15. Næsta viðureign á eftir fer fram í Vestmannaeyjum á...

Molakaffi: Jóhannes, Arnór, Elmar, Tumi, Tryggvi, Hannes

Jóhannes Berg Andrason skoraði eitt mark í góðum sigri TTH Holstebro á Mors-Thy, 31:30, á heimavelli í fjórðu umferð af fimm í B-riðli átta liða úrslitakeppni dönsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik í gær. TTH Holstebro, sem Arnór Atlason þjálfar, á enn...

Olís kvenna: Leikjadagskrá, úrslitakeppni 2026

Hér fyrir neðan er leikjadagskrá úrslitakeppni Olísdeildar kvenna í handknattleik 2026. Dagskráin verður uppfærð eftir því sem úrslitakeppninni vindur fram með úrslitum leikja, leikdögum og leiktímum. Leikir úrslitakeppninnar verða sendir út á Handboltapassanum og valdar viðureignir í opinni dagskrá í...

Haukur lét til sín taka í Íslendingaslag í Mannheim

Haukur Þrastarson var að vanda driffjöður sóknarleiks Rhein-Neckar Löwen í dag þegar liðið vann MT Melsungen, 30:22, á heimavelli í 30. umferð þýsku 1. deildarinnar í handknattleik. Haukur skoraði átta mörk og gaf fimm stoðsendingar og var markahæsti leikmaður...
- Auglýsing-

Matthías Ingi flytur vestur á Nes

Matthías Ingi Magnússon hefur skrifað undir tveggja ára samning við Handknattleiksdeild Gróttu. Hann kemur til félagsins frá ÍR. Matthías Ingi fæddist fyrir 20 árum og steig sín fyrstu handboltaskref hjá Fylki og lék síðar með Fjölni/Fylki þar til hann skipti...

Magnús Óli fékk heilahristing

Magnús Óli Magnússon leikmaður Vals fékk heilahristing í þriðja úrslitaleik Vals og FH um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik í gærkvöld. Ágúst Þór Jóhannsson þjálfari Vals staðfestir tíðindin í viðtali við Vísi í dag. Magnús Óli varð fyrir þungu höfuðhöggi síðla...

Afturelding fær liðsauka frá Stjörnunni

Rakel Dórothea Ágústsdóttir hefur samið við handknattleiksdeild Aftureldingar um að leika með liðinu næstu tvö árin. Rakel kemur til Aftureldingar frá Stjörnunni hvar hún hefur leikið síðustu þrjú ár. Rakel Dórothea er hægri handar skytta sem er uppalin hjá HK....

Henrik Ibsen stöðvaði Íslendingaliðið

Íslendingaliðið Kolstad tapaði á heimavelli fyrir Bergen Håndball í fyrstu umferð undanúrslita úrslitakeppni norsku úrvalsdeildarinnar í gær, 33:30. Víst er að leikmenn Kolstad verða að bíta í skjaldarrendur fyrir næstu viðureign í Björgvin á þriðjudaginn því aðeins þarf að...
- Auglýsing-

Aron Örn verður Andra til halds og trausts

Aron Örn Heimisson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla hjá Gróttu en hann mun einnig sinna þjálfun 3. flokks karla hjá félaginu. Aron Örn verður þar með Andra Sigfússyni til halds og trausts. Andri var ráðinn þjálfari karlaliðs Gróttu...

Alvarleg meiðsli Frøland staðfest

Amalia Frøland markvörður ÍBV er með slitið fremra krossband í hné og leikur væntanlega ekki handknattleik næsta árið. Eyjafréttir staðfesta ótíðindin með alvarleg meiðsli markvarðarins sem leikur vitanlega ekki með ÍBV-liðinu í komandi úrslitaleikjum við Val um Íslandsmeistaratitilinn. Fyrsta...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. Ívar er einnig forstjóri útgerðarfélagsins Staðið á sporði. Netfang: [email protected]
19315 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -