- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Alvarleg meiðsli Frøland staðfest

- Auglýsing -

Amalia Frøland markvörður ÍBV er með slitið fremra krossband í hné og leikur væntanlega ekki handknattleik næsta árið. Eyjafréttir staðfesta ótíðindin með alvarleg meiðsli markvarðarins sem leikur vitanlega ekki með ÍBV-liðinu í komandi úrslitaleikjum við Val um Íslandsmeistaratitilinn. Fyrsta viðureignin fer fram á morgun, laugardag, í N1-höllinni á Hlíðarenda.


Frøland meiddist á þriðju mínútu síðari framlengingar í oddaleik ÍBV og Hauka í undanúrslitum úrslitakeppni Olísdeildar í Vestmannaeyjum á þriðjudag. Eftir að Frøland varði frækilega vítakast var eins og eitthvað gæfi sig í hægri fæti er hún stóð upp af gólfinu. Strax vaknaði grunur um að meiðslin væru alvarleg sem nú hefur verið staðfest í Eyjafréttum.

Ólöf Maren Bjarnadóttir verður þar með aðalmarkvörður ÍBV í úrslitakeppninni en óvíst er hver verður henni til halds og trausts. Hefur því til að mynda verið hent á loft að Vigdís Sigurðardóttir fyrrverandi landsliðsmarkvörður taki fram handboltaskóna og hvíli hlaupaskóna á meðan. Hvað sem því líður er ljóst að forsvarsfólk handknattleiksdeildar verður að horfa í kringum sig eftir markverði fyrir næsta tímabil til þess að hafa við hlið Ólafar Marenar.

Frøland hefur verið ein af öflugri markvörðum deildarinnar á leiktíðinni. Hún gekk til liðs við ÍBV síðasta sumar þegar Marta Wawrzykowska hvarf á braut.

Ekki er óalgengt að ár líði frá læknisaðgerð vegna krossbandaslits þangað til handknattleiksmaður snýr aftur á leikvöllinn.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -