Óttast er að Amalia Frøland markvörður ÍBV hafi meiðst alvarlega í oddaleik ÍBV og Hauka í íþróttamiðstöðinni í Vestmannaeyjum í kvöld. Verði það raunin að Frøland sé alvarlega meidd eru það vondar fréttir fyrir ÍBV-liðið sem mætir Val í úrslitarimmunni um Íslandsmeistaratitilinn.
Frøland fór sárþjáð af leikvelli á þriðju mínútu síðari framlengingar liðanna. Svo leit út fyrir að hægri hásin hefði slitnað eða alvarleg meiðsli hefðu orðið á hægri kálfa.
Frøland varði vítakast frá Emblu Steindórsdóttur leikmanni Hauka í framlengingunni en stakk strax við er hún reyndi að stökkva upp og fagna vörslu sinni, lá eftir og fékk aðhlynningu eins og áður og var síðan aðstoðuð af leikvelli.
Frøland hefur verið ein af öflugri markvörðum deildarinnar á leiktíðinni. Hún gekk til liðs við ÍBV síðasta sumar þegar Marta Wawrzykowska hvarf á braut.



