- Auglýsing -
- Jóhannes Berg Andrason skoraði eitt mark í góðum sigri TTH Holstebro á Mors-Thy, 31:30, á heimavelli í fjórðu umferð af fimm í B-riðli átta liða úrslitakeppni dönsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik í gær.
- TTH Holstebro, sem Arnór Atlason þjálfar, á enn von um sæti í undanúrslitum um danska meistaratitilinn. Til þess þarf vissulega allt að falla með liðinu. Í fyrsta lagi þarf TTH að vinna Skanderborg AGF í síðustu umferð riðlakeppninnar 10. maí. Um leið þarf TTH að treysta á að Bjerringbro/Silkeborg vinni Mors-Thy.
- Elmar Erlingsson skoraði eitt mark og gaf tvær stoðsendingar í öruggum sigri HSG Nordhorn-Lingen á Eulen Ludwigshafen, 31:25, í 30. umferð þýsku 2. deildarinnar í gær. Leikið var á Emsland Arena, heimavelli Nordhorn. Liðið situr í sjötta sæti deildarinnar þegar fjórar umferðir eru eftir.
- Tumi Steinn Rúnarsson skoraði tvö mörk og gaf sjö stoðsendingar í eins marks tapi liðs hans, Alpla Hard, fyrir Aon Fivers í fyrstu viðureign liðanna í átta liða úrslitum austurrísku 1. deildarinnar í handknattleik. Leikið var í Bregenz, heimavelli Alpla Hard.
- Hannes Jón Jónsson er þjálfari Alpla Hard. Tryggvi Garðar Jónsson leikmaður liðsins kom ekkert við sögu í sóknarleiknum. Næsti leikur liðanna verður á heimavelli Fivers á þriðjudaginn.
- Auglýsing -


