- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Aron Örn verður Andra til halds og trausts

- Auglýsing -

Aron Örn Heimisson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla hjá Gróttu en hann mun einnig sinna þjálfun 3. flokks karla hjá félaginu. Aron Örn verður þar með Andra Sigfússyni til halds og trausts. Andri var ráðinn þjálfari karlaliðs Gróttu á dögunum.


„Aron kemur til Gróttu frá Fram. Hann spilaði upp alla yngri flokkana með félaginu og hóf þjálfun hjá Fram árið 2017. Hefur hann frá þeim tíma þjálfað yngri flokka félagsins, bæði karla og kvenna, frá 6. flokki upp í 3. flokk. Síðustu tvö ár hefur hann stýrt 3. flokki kvenna og U-liði félagsins og var á síðasta tímabili einnig aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna,“ segir m.a. í tilkynningu handknattleiksdeildar Gróttu.

Andri tekur við þjálfun Gróttu

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -