- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Andri tekur við þjálfun Gróttu

- Auglýsing -

Andri Sigfússon hefur verið ráðinn þjálfari karlaliðs Gróttu til næstu tveggja ára. Hann tekur við af Davíð Erni Hlöðverssyni sem lét af störfum fyrir skemmstu eftir að Grótta féll úr leik í undanúrslitum umspils Olísdeildar karla með tapi fyrir Herði. Áður hafi Gróttuliðið hafnað í öðru sæti Grill 66-deildar.


Andri hefur undanfarin tvö ár verið yfirþjálfari handknattleiksdeildarinnar og gegnt þar veigamiklu hlutverki við uppbyggingu handboltans í Gróttu. Fjölgun iðkenda hefur vakið athygli en í dag æfa rúmlega 400 krakkar handbolta í félaginu og fjölgunin 83% frá árinu 2020 til dagsins í dag og framtíðin sannarlega björt.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -