Fyrsti úrslitaleikur Vals og ÍBV um Íslandsmeistaratitil kvenna í handknattleik fer fram í dag í N1-höllinni á Hlíðarenda. Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson dómarar flauta til leiks klukkan 15. Næsta viðureign á eftir fer fram í Vestmannaeyjum á þriðjudaginn. Liðið sem fyrr vinnur þrjár viðureignir verður Íslandsmeistari.
Bæði lið sátu yfir í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. Valur, sem hefur orðið Íslandsmeistari síðustu þrjú ár, lagði Fram í undanúrslitum með þremur vinningum gegn engu. Síðasti leikur liðanna var miðvikudaginn 22. apríl.
ÍBV, sem lék síðast til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn fyrir þremur árum, lagði Hauka í fimm leikja rimmu í undanúrslitum með þremur vinningum gegn tveimur. Oddaleikur liðanna var í Vestmannaeyjum á þriðjudaginn. Hann var tvíframlengdur og lauk, 36:31. Var það önnur tvíframlengda viðureign liðanna í undanúrslitum.
Ef marka má merkingu á heimasíðu HSÍ þá verður leikur Vals og ÍBV í dag sendur út í opinni dagskrá í sjónvarpi Símans. Annars er yfirleitt alltaf hægt að treysta á útsendingar Handboltapassans.



