Arnar Daði Arnarsson og Hanna Guðrún Stefánsdóttir hafa komist að samkomulagi við handknattleiksdeild Stjörnunnar um að halda áfram þjálfun kvennaliðsins á næsta tímabili.
Arnar Daði og Hanna Guðrún tóku við þjálfun liðsins í nóvember síðastliðnum eftir að Patrekur Jóhannesson lét af störfum. Hanna Guðrún hafði verið aðstoðarþjálfari Patreks.
Stjarnan bjargaði sér á ævintýralegan hátt frá falli niður í Grill 66 deildina með því að gera tvö jafntefli í síðustu tveimur umferðum Olísdeildarinnar í vor, það síðara gegn Haukum þar sem Stefán Arnarsson þjálfari Hauka bjargaði Stjörnunni með því að taka leikhlé of snemma og strika þannig út sigurmark Hauka.
Stjarnan vann svo Gróttu í oddaleik í umspili um sæti í Olísdeildinni en síðar kom í ljós að Grótta fær einnig sæti á meðal þeirra bestu vegna fjölgunar liða í deildinni.
„Þau Arnar Daði Arnarsson og Hanna Guðrún Stefánsdóttir halda áfram við stjórnvölinn og leiða liðið inn í komandi verkefni. Við fögnum því að halda áfram með öflugt teymi innan félagsins og hlökkum mikið til næsta tímabils!“ sagði meðal annars í tilkynningu handknattleiksdeildar Stjörnunnar.



