- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Auður tekur slaginn í Olísdeildinni

- Auglýsing -

Auður Guðmundsdóttir, ungur og efnilegur leikmaður HK, hefur samið við uppeldisfélag sitt um að leika áfram með liðinu næstu tvö ár.

Auður er 17 ára gömul og leikur sem hægri hornamaður. Hún lék sína fyrstu tvo leiki fyrir meistaraflokk er HK vann Grill 66 deildina á nýafstöðnu tímabili. Þar með leikur HK í Olísdeildinni á næsta tímabili.


Auður skoraði sömuleiðis sitt fyrsta mark í meistaraflokki í öðrum af leikjunum tveimur og var sömuleiðis lykilmaður hjá 3. flokki HK sem hafnaði í öðru sæti Íslandsmótsins.

„Auður hefur á undanförnum árum bætt sig mjög og bindur HK miklar vonir við hana á komandi árum,“ sagði meðal annars í tilkynningu handknattleiksdeildar HK.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -