- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Döhler tryggði FH bæði stigin í grannaslag

Phil Döhler, markvörður, sá til þess að FH fór með bæði stigin í viðureign sinni við granna sína í Haukum í Kaplakrika í kvöld. Þjóðverjinn hafði verið daufur í markinu í síðari hálfleik en reis upp þegar mest á...

Ómar Ingi og Gísli eru komnir í undanúrslit

Ómar Ingi Magnússon skoraði fjögur mörk og Gísli Þorgeir Kristjánsson eitt þegar SC Magdeburg vann sádi arbíska liðið Khaleej, 35:29, í riðlakeppni heimsmeistaramóts félagsliða í handknattleik í Dammam í Sádi Arabíu í dag. Þar með komust meistarar síðasta árs...

Ekki verður dregið lengur að draga

Dregið verður í fyrstu umferð í karlaflokki í bikarkeppni HSÍ klukkan 11 á morgun á skrifstofu HSÍ. Þrjár viðureignir standa fyrir dyrum í fyrstu umferð en 19 lið eru skráð til keppni. Þau eru: Afturelding, FH, Fjölnir, Fram, Grótta,...

Sló í bakseglið hjá Darra – hittir lækni eftir helgi

Því miður sló í bakseglið hjá handknattleiksmanninum Darra Aronssyni á dögunum svo óvíst er hversu lengi hann verður frá keppni til viðbótar. Darri ristarbrotnaði um miðjan júlí rétt áður en hann fór til franska liðsins US Ivry og hefur...
- Auglýsing-

Þreifa sig áfram með þrjá dómara

Sex árum eftir að Handknattleikssamband Evrópu velti vöngum yfir að bæta við þriðja dómaranum inn á handknattleiksvöllinn mátar Alþjóða handknattleikssambandið sig við þriggja dómara kerfi á heimsmeistaramóti félagsliða í karlaflokki sem stendur yfir í Dammam í Sádi Arabíu. Verði góð...

Stórskytta Gróttu úr leik næstu vikurnar

Stórskyttan Birgir Steinn Jónsson leikur ekki með Gróttu næstu vikurnar eftir að hafa handarbrotnað á æfingu liðsins í byrjun vikunnar. Vísir segir frá meiðslum Birgis Steins í morgun. Birgir Steinn verður í gifsi næstu þrjár til fjórar vikur af...

Haukur og samherjar í undanúrslit í Dammam

Pólska meistaraliðið Łomża Industria Kielce tryggði sér í morgun sæti í undanúrslitum heimsmeistaramóts félagsliða í handknattleik karla með níu marka sigri á brasilíska liðinu Handebol Taubaté, 39:30, í annarri umferð keppninnar í Dammam í Sádi Arabíu. Haukur skoraði eitt mark...

Dagskráin: Hafnarfjarðarslagur í Kaplakrika

Sjötta umferð Olísdeildar karla hefst í kvöld með stórleik í Kaplakrika þegar Hafnarfjarðarliðin FH og Haukar leiða saman garpa sína. Flautað verður til leiks klukkan 19.30. Hvorugt liðið hefur náð sér almennilega á flug til þessa á leiktíðinni. Það breytir...
- Auglýsing-

Molakaffi: Tryggvi, Bjarni, Ásgeir, Egill Már, Victor Máni, Roland, Appelgren

Tryggvi Þórisson skoraði ekki fyrir IK Sävehof þegar liðið vann Hammarby, 27:25, á heimavell í sænsku úrvalsdeildinni í gærkvöld. IK Sävehof er í sjötta sæti með sex stig eftir fimm leiki, á inni leik við Gautaborgarliðið Önnereds sem einnig...

Akureyringarnir flugu í átta liða úrslit

Akureyringarnir, Aldís Ásta Heimisdóttir og Ásdís Guðmundsdóttir, léku með Skara HF í kvöld þegar liðið komst glæsilega í átta liða úrslit sænsku bikarkeppninnar eftir sex marka sigur á Kungälvs HK, 35:29, á heimavelli. Um var að ræða síðari...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. Ívar er einnig forstjóri útgerðarfélagsins Staðið á sporði. Netfang: [email protected]
19303 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -