Stórskyttan Birgir Steinn Jónsson leikur ekki með Gróttu næstu vikurnar eftir að hafa handarbrotnað á æfingu liðsins í byrjun vikunnar. Vísir segir frá meiðslum Birgis Steins í morgun.
Birgir Steinn verður í gifsi næstu þrjár til fjórar vikur af þessum sökum. Eftir að gifsið verður á bak og burt líður einhver tími þangað til Birgir Steinn mætir galvaskur út á völlinn á nýjan leik.
Vonir Birgis Stein standa til þess að ná einhverjum leikjum áður en hlé verður gert á keppni í Olísdeildinni upp úr miðjum desember.
Eins og nærri má geta eru meiðsli kappans áfall fyrir Gróttuliðið enda á ferðinni markahæsti leikmaður liðsins tvö síðustu keppnistímabil. Birgir Steinn tók úr leikbann í síðasta leik Gróttu þegar liðið tapaði fyrir FH, 30:27, í Hertzhöllinni á Seltjarnarnesi.
Grótta er í áttunda sæti Olísdeildar með fjögur stig eftir fimm leiki og sækir Fram heim í Úlfarsárdal annað kvöld klukkan 20 í sjöttu umferð.