Dregið verður í fyrstu umferð í karlaflokki í bikarkeppni HSÍ klukkan 11 á morgun á skrifstofu HSÍ.
Þrjár viðureignir standa fyrir dyrum í fyrstu umferð en 19 lið eru skráð til keppni. Þau eru: Afturelding, FH, Fjölnir, Fram, Grótta, Haukar, HK, Hörður, ÍBV, ÍBV 2, ÍR, KA, Kórdrengir, Selfoss, Stjarnan, Valur, Víðir, Víkingur og Þór.
Nöfn fjögurra liða verða ekki í skálunum þegar dregið verður á morgun, Valur, Haukar, KA og ÍBV. Ástæða þess að þau sitja hjá er þátttaka þeirra í Evrópukeppni en m.a. á KA að leika í Evrópubikarkeppninni sömu helgi og fyrsta umferð bikarkeppni HSÍ fer fram.
Leikirnir þrír í fyrstu umferð fara fram fimmtudaginn 27. og föstudaginn 28. október.
Dregið verður í 16 liða úrslit bikarkeppni HSÍ karla og kvenna um byrjun nóvember.
Til stendur að streymt frá drættinum á morgun á Facebook síðu HSÍ.