Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Í liði ársins annað árið í röð

Ómar Ingi Magnússon er í úrvalsliði þýsku 1. deildarinnar í handknattleik fyrir keppnistímabilið 2021/2022. Hann er eini Íslendingurinn í liðinu sem valið er í samkvæmt ýmsum tölfræðiþáttum sem teknir eru saman eftir hvern leik deildarinnar. Þetta er annað árið...

Molakaffi: Daníel Andri, Boquist, staðfest fjölgun hjá yngri landsliðum

Daníel Andri Valtýsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Gróttu. Daníel er 25 ára gamall og kom til liðs við Gróttu fyrir þremur árum. Hann er markmaður og er uppalinn á Hlíðarenda. Daníel lék stærstan hluta leikjanna...

Hlaupið hefur á snærið hjá meistaraliði Vals

Handknattleiksmaðurinn Aron Dagur Pálsson hefur ákveðið að snúa heim eftir þriggja ára veru í Svíþjóð og Noregi og ganga til liðs við Íslands-, deildar- og bikarmeistara Vals. Aron sem er 25 ára og getur jafnt leikið sem miðjumaður og skytta...

Lokahóf Fram: Steinunn heiðruð fyrir 300 leiki – nýr heiðursfélagi

Lokahóf handknattleiksdeildar Fram var haldið á síðasta fimmtudagskvöld. Þar var fagnað árangri nýliðannar leiktíðar hjá meistaraflokkum félagsins. Kvennalið Fram varð Íslandsmeistari og deildarmeistari í Olísdeildinni. Veittar voru viðurkenningar til einstaklinga í meistarflokkum karla og kvenna. M.a fékk Steinunn Björnsdóttir viðurkenningu...
- Auglýsing-

Enn vofir brottvísun yfir Vardar

Aftur eru fjárhagsvandræði meistaraliðs Norður Makedóníu í karlaflokki, Vardar Skopje, komin undir smásjá Handknattleikssambands Evrópu, EHF. Balkan-Handball segir frá því í morgun að til standi hjá EHF að útiloka Vardar frá keppni í Evrópukeppni félagsliða á næstu leiktíð. Vardar...

Molakaffi: Gómez, Karalek, Dujsjebaev, fyrsta sinn, tvö ár í röð

Aleix Gómez, hægri hornamaður Barcelona, var markahæsti leikmaður úrslitahelgar Meistaradeildar Evrópu sem fram fór í gær og í fyrradag í Lanxess-Arena í Köln. Gómez skoraði 21 mark í leikjunum tveimur. Hann hefur tekið þátt í úrslitaleikjum þriggja síðustu ára...

Elías Már skrifar undir þriggja ára samning

Elías Már Halldórsson hefur skrifað undir nýjan samning við Fredrikstad Ballklubb um þjálfun úrvalsdeildarliðs félagsins í kvennaflokki. Nýi samningurinn gildir til ársins 2025. Um leið skrifaði samstarfskona Elíasar Más, Gjøril Johansen Solberg, einnig undir þriggja ára samning en bæði...

Eitt vítakast skildi að í stórkostlegum úrslitaleik

Barcelona er Evrópumeistari í handknattleik karla annað árið í röð eftir að hafa unnið pólska meistaraliðið Łomża Vive Kielce, 37:35, eftir framlengingu og vítakeppni í Lanxess-Arena í Köln í stórkostlegum úrslitaleik. Þetta er í 11. sinn sem Barcelona vinnur...
- Auglýsing-

Landin skreið úr felum og gerði gæfumuninn

Niklas Landin var hetja THW Kiel þegar liðið tryggði sér bronsverðlaunin í Meistaradeild Evrópu í handknattleik í dag. Danski landsliðsmarkvörðurinn varði tvö vítaköst í vítakeppni sem varð að grípa til að ná fram hreinum úrslitum í viðureign THW Kiel...

Haukur tekinn út úr hópnum fyrir úrslitaleikinn

Haukur Þrastarson er ekki í leikmannahópi Łomża Vive Kielce sem leikur við Barcelona í úrslitum Meistaradeildar Evrópu í handknattleik karla í Lanxess-Arena í Köln í dag. Talant Dujsebaev tilkynnti í morgun hvaða 16 leikmönnum hann ætlar að tefla fram...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. Ívar er einnig forstjóri útgerðarfélagsins Staðið á sporði. Netfang: [email protected]
18979 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -