- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Dagskrá: Fimm leikir og fjör á keppnisvöllum

Fimm leikir af sex í 17. umferð Olísdeildar karla í handknattleik fara fram í kvöld. Sjötta og síðasta viðureignin fer fram annað kvöld þegar KA og FH eigast við. Leiknum var frestað um sólarhring vegna viðureignar Þórs og FH...

Mættir til leiks í Búkarest

Félagarnir Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson eru klæddir og komnir á ról í Búkarest í Rúmeníu þar sem þeirra bíður það verkefni síðar í dag að dæma viðureign Dinamo Búkarest og franska stórliðsins PSG í B-riðli Meistaradeildar Evrópu...

Molakaffi: Arnar Birkir, Sveinbjörn, Óskar, Viktor, Eiríkur Guðni, Veigar Snær, Daði, Sigurjón Friðbjörn, der Heijden

Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði tvö mörk og átti eina stoðsendingu fyrir lið EHV Aue þegar það tapaði naumlega á heimavelli í hörkuleik fyrir Nordhorn, 23:22, í þýsku 2.deildinni í gærkvöld. Með sigrinum komst Nordhorn í efsta sæti deildarinnar, tveimur...

Teitur Örn lét þrumuskotin dynja á mark Porto

Teitur Örn Einarsson fór á kostum með Flensburg í kvöld þegar liðið krækti í annað stigið í gegn Porto á heimavelli í B-riðli Meistaradeildar Evrópu í handknatteik, 26:26. Selfyssingurinn lét þrumuskotin dynja á mark Portoliðsins var markahæstur leikmanna...
- Auglýsing-

Stórleikur Bjarna Ófeigs dugði ekki til sigurs

Stórleikur Bjarna Ófeigs Valdimarssonar fyrir IFK SKövde dugði liðinu ekki til sigurs á heimavelli í kvöld þegar það mætti Kristianstad í sænsku úrvalsdeildinni í handknattleik. Gestirnir unnu með þriggja marka mun, 24:21. Bjarni Ófeigur var allt í öllu hjá IFK...

FH-ingar voru alltof sterkir fyrir Þórsara

FH mætir Val í undanúrslitum Coca Cola-bikars karla í handknattleik á Ásvöllum miðvikudaginn 9. mars. Það liggur fyrir eftir öruggan sigur FH-inga á Þór Akureyri, 33:22, í viðureign liðanna í Íþróttahöllinni á Akureyri í kvöld. FH-ingar voru með yfirhöndina...

Svekkjandi tap í Kastamonu

Íslenska landsliðið í handknattleik mátti þola svekkjandi tap fyrir tyrkneska landsliðinu 30:29, í undankeppni Evrópumótsins í Kastamonu í Tyrklandi í dag. Tyrkir skoruðu tvö síðustu mörk leiksins og náðu í eina skiptið yfirhöndinni með sigurmarkinu. Íslenska liðið var marki...

Dagskráin: Bítast um sæti í undanúrslitum

Í kvöld verður leitt til lykta hvort Þór Akureyri eða FH leika við Val í undanúrslitum Coca Cola-bikarsins í karlaflokki. FH-ingar eru á leiðinni norður í þessum töluðu orðum og mæta til leiks í íþróttahöllinni á Akureyri klukkan 19. Leikurinn...
- Auglýsing-

Erlangen staðfestir ráðningu Ólafs

Þýska handknattleiksfélagið HC Erlangen í Nürnberg staðfesti rétt fyrir hádegið að Ólafur Stefánsson hafi verið ráðinn aðstoðarþjálfari karlaliðs félagsins sem leikur í 1. deild. Fregnin úr herbúðum HC Erlangen kom sólarhring eftir að Vísir.is sagði frá því fyrstur fjölmiðla hér...

Harðákveðinn í að hætta eftir höfuðhögg

Brynjar Darri Baldursson, sem verið hefur markvörður Stjörnunnar um nokkurra ára skeið og lék áður með FH, er harðákveðinn í að leggja handboltaskóna á hilluna eftir að hafa fengið annað höfuðhögg á einu ári í leik Stjörnunnar og KA...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Blaðamannafélagi Íslands númer 162 og í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. ivar@handbolti.is
18208 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -