- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Tuttugu leikmenn með á EM – kalla má í sex leikmenn

Svipaðar reglur verða í gildi varðandi fjölda leikmanna í hverjum landsliðshóp á Evrópumeistaramóti karla í handknattleik sem fram fer í Ungverjalandi og Slóvakíu í næsta mánuði og var á heimsmeistaramóti karla í handknattleik sem haldið var í Egyptalandi snemma...

Þær hafa skorað flest mörk

Eva Björk Davíðsdóttir, leikmaður Stjörnunnar, er markahæst í Olísdeild kvenna þegar hlé hefur verið gert á keppni í deildinni fram í byrjun janúar. Eva Björk hefur skorað 68 mörk í 10 leikjum eða 6,8 mörk að jafnaði í leik....

Tap á síðustu sekúndu

Íslendingatríóið hjá færeyska handknattleiksliðinu Neistanum mátti bíta í það súra epli að tapa fyrir Kyndli á síðustu sekúndu viðureignar liðanna í færeysku úrvalsdeildinni í handknattleik í gærkvöld, 26:25. Leikmenn Kyndils skoruðu sigurmarkið þegar ein sekúnda var eftir af leiknum...

Dagskráin: Endasprettur ársins er að hefjast

Fyrsti leikur 13. umferðar Olísdeildar karla, og jafnframt þeirrar síðustu á árinu fer fram í kvöld þegar flautað verður til leiks í Sethöllinni á Selfossi í viðureign Selfoss og Fram klukkan 19.30. Selfoss-liðið hefur sótt mjög í sig veðrið upp...
- Auglýsing-

Framlengir dvölina hjá Gummersbach

Eyjamaðurinn og landsliðsmaðurinn í handknattleik, Elliði Snær Viðarsson, hefur framlengt samning sinn við þýska handknattleiksliðið Vfl Gummersbach um eitt ár. Hann er þar með samningsbundinn liði félagsins fram á mitt ár 2023. Gummersbach greindi frá þessu í morgunsárið. Elliði Snær...

Molakaffi: Ágúst Elí, Aron, Arnór, Orri Freyr, Donni, Späth

Ágúst Elí Björgvinsson markvörður Kolding var í úrvalsliði 15. umferðar dönsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik. Hann var með með 48,6% markvörslu í sex marka sigri Kolding á SönderjyskE, 29:23, á heimavelli. Auk þess skoraði Ágúst Elí eitt mark í leiknum.  Ágústi...

Alusovski í tveggja leikja bann fyrir að hóta dómurum

Stevce Alusovski þjálfari Þórs á Akureyri hafði í hótunum við dómara leiks Þórs og ungmennaliðs Vals í Grill66-deild karla í handknattleik á síðasta laugardagin. Svo segir í úrskurði aganefndar HSÍ sem birtur var í kvöld. Af þeim sökum var...

Myndskeið: Ótrúleg markvarsla hjá þeirri sænsku

Sænski landsliðsmarkvörðurinn Jessica Ryde varði hreint á ótrúlegan hátt undir lok leiks Frakka og Svía í átta liða úrslitum heimsmeistaramótsins í handknattleik kvenna í kvöld. Svíar voru fjórum mörkum undir, 29:25, og höfðu kallað Ryde af leikvelli til þess að...
- Auglýsing-

HM: Ólympíumeistararnir mæta Dönum

Ólympíumeistarar Frakka mæta Dönum í undanúrslitum á heimsmeistaramóti kvenna í handknattleik á föstudaginn. Frakkar unnu öruggan sigur í Svíum í síðasta leik átta liða úrslita HM í kvöld, 31:26. Svíar pakka þar með saman föggum sínum í fyrramálið og...

Þýski bikarinn – skin og skúrir hjá Íslendingum

Rhein Neckar Löwen, Melsungen, GWD Minden og Kiel bættust í kvöld í hóp þeirra liða sem komin eru í átta liða úrslit í þýsku bikarkeppninni í handknattleik. Í gærkvöld unnu Lemgo, Gummersbach og Erlangen viðureignir sínar í 16-liða úrslitum....

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. Ívar er einnig forstjóri útgerðarfélagsins Staðið á sporði. Netfang: [email protected]
18863 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -