- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

ÓL: Átta liða úrslit kvenna ásamt leiktímum

Leikið verður í átta liða úrslitum handknattleikskeppni kvenna á Ólympíuleikunum á miðvikudaginn. Landslið eftirtalinna landa mætast, íslenskir leiktímar. Kl. 00.30 Svartfjallaland - RússlandKl. 04.15 Noregur - UngverjalandKl. 08.00 Suður Kórea - SvíþjóðKl. 11.45 Holland - Frakkland

ÓL: Þórir stýrir eina taplausa landsliðinu

Norska kvennalandsliðið í handknattleik, undir stjórn Selfyssingsins Þóris Hergeirssonar, er eina taplausa handknattleikslið Ólympíuleikanna þegar riðlakeppnin er að baki í kvenna- og karlaflokki. Noregur vann Japan örugglega í síðasta leik riðlakeppninnar í Tókýó í dag, 37:25, og hafnaði í...

Markvörður fer frá FH til Fram

Írena Björk Ómarsdóttir, markvörður, hefur skrifaði undir tveggja ára samning við Fram. Hún kemur til Safamýrarliðsins frá FH en Írena Björk er uppalin hjá Stjörnunni. Írena Björk, sem lék 11 af 14 leikjum FH í Olísdeildinni á síðasta tímabili, verður...

Díana Dögg með félögunum í æfingabúðum á æskuslóðum

Þýska handknattleiksliðið BSV Sachsen Zwickau, sem landsliðskonan Díana Dögg Magnúsdótttir leikur með, hefur síðustu daga dvalið í æfingabúðum á bernskuslóðum Díönu Daggar í Vestmannaeyjum. Félagið greinir frá því á Facebook-síðu sinni og birtir margar myndir ásamt frásögninni. Fjölskyldu...
- Auglýsing-

ÓL: Ungverjar sendu Spánverja heim

Ungverska landsliðið í handknattleik kvenna sendi Spánverja heim af Ólympíuleikunum í morgun. Ungverjar unnu Svíþjóð, 26:23, í síðasta leik B-riðils og kræktu þar með í fjórða sæti riðilsins. Spánverjar féllu niður í fimmta sæti og hafa þar með lokið...

ÓL: Skakkaföll hjá Frökkum og Norðmönnum

Landslið Frakka og Norðmanna í handknattleik karla urðu fyrir skakkaföllum í gær þegar leikmenn meiddust og ljóst að þeir verða jafnvel ekki meira með á Ólympíuleikunum. Timothey N'Guessan tognaði á kálfa snemma í viðureign Frakklands og Noregs í gær í...

Molakaffi: Karabatic, Descat, Víkingar leita, Arnar Freyr, Kohlbacher, Orri Freyr

Nikola Karabatic lék sinn 35. leik á Ólympíuleikum í gær þegar franska landsliðið mætti því norska. Karabatic jafnaði þar með metin við rússneska markvörðinn Andrei Lavrov sem leikið hefur flesta leiki í handknattleikskeppni Ólympíuleika. Karabatic bætir metið þegar Frakkar...

Gríðarlega ánægðir með sigur í síðasta leiknum

„Við erum gríðarlega ánægðir með að hafa náð sigri í síðasta leiknum. Frammistaða liðsins var frábær,“ sagði Dagur Sigurðsson, landsliðsþjálfari Japans, við handbolta.is í dag eftir sigur japanska landsliðsins á landsliði Portúgals í lokaumferð riðlakeppni handknattleikskeppni Ólympíuleikanna í Tókýó,...
- Auglýsing-

ÓL: Átta liða úrslit karla ásamt leiktímum

Leikið verður í átta liða úrslitum handknattleikskeppni karla á Ólympíuleikunum á þriðjudaginn. Landslið eftirtalinna landa mætast, íslenskir leiktímar. Kl. 00.30 Frakkland - BareinKl. 04.15 Svíþjóð - SpánnKl. 08.00 Danmörk - NoregurKl. 11.45 Þýskaland - Egyptaland

ÓL: Tapið skipti ekki máli

Eftir sautján sigurleiki í röð á stórmótum í handknattleik þá máttu Ólympíu- og heimsmeistarar Dana sætta sig við þriggja marka tap fyrir Svíum í lokaleik riðlakeppni Ólympíuleikanna í Tókýó í dag, 33:30. Svíar voru fjórum mörkum yfir að loknum...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Blaðamannafélagi Íslands númer 162 og í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. ivar@handbolti.is
18175 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -