- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Guðjón Valur með Gummersbach á toppnum

Gummersbach, liðið sem Guðjón Valur Sigurðsson þjálfar og Eyjamaðurinn Elliði Snær Viðarsson leikur með, komst í kvöld í efsta sæti þýsku 2. deildarinnar með 14 marka sigri á Dessauer, 34:20, á útivelli. Gummersbach er þar með komið með 47 stig...

Treystu stöðu sína með sigri

Kristján Örn Kristjánsson, Donni, og samherjar hans í PAUC treystu stöðu sína í fjórða sæti frönsku úrvalsdeildinnar í handknattleik með tveggja marka sigri á Ivry, 27:25, á heimavelli í frestuðum leik úr sjöttu umferð. PAUC hefur þar með 32 stig...

Aron og samherjar eru á leið til Kölnar

Aron Pálmarsson og félagar í Barcelona eru komnir í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu í handknattleik eftir öruggan sigur á Meshkov Brest frá Hvíta-Rússlandi, 40:28, í síðari leik liðanna í Barcelona í kvöld. Barcelona stóð afar vel að vígi eftir fjögurra...

KA er öruggt í úrslitakeppnina

KA innsiglaði sæti sitt í úrslitakeppninni í fyrsta sinn í 16 ár í kvöld með eins marks sigri á FH í KA-heimilinu, 30:29, eftir að hafa verið marki undir í hálfleik, 13:12. KA fór þar með í fjórða...
- Auglýsing-

„Ég hlakka til að vinna aftur með Gumma“

„Ég hlakka til að vinna aftur með Gumma á næsta tímabili,“ sagði Alexander Petersson, landsliðsmaður í handknattleik og núverandi liðsmaður Flensburg í Þýskalandi þegar handbolti.is sló á þráðinn til hans í vikunni og spurði hann út í nýgerðan samning...

Háttsemi úr öllum takti við það sem félagið vill standa fyrir

Handbolta.is hefur borist tilkynning frá Gróttu vegna framkomu og ummæla fámenns hóps stuðningsmanna félagsins í garð leikmanna kvennaliðs ÍR í umspilsleikjum Gróttu og ÍR á síðustu dögum og fjallað var m.a. um í Bítinu á Bylgjunni í morgun og...

Ítrekað var hrópað að hún væri ógeð og kynni ekki að hlaupa

Karen Ösp Guðbjartsdóttir, markvörður ÍR, sagði ófagra sögu í Bítunu á Bylgjunni í morgun af örfáum unglingspiltum í hópi stuðningsmanna Gróttu sem höfðu uppi niðrandi hróp í garð leikmanna ÍR-inga í umspilsleikjunum við Gróttu í undanúrslitum um sæti í...

Dagskráin: Hreinsað upp í deild og bikar

Tveir leikir eru í dagskrá í kvöld. Annarsvegar frestaður leikur í 18. umferð á milli KA og FH og hinsvegar stendur til að leikið verði í 32-liða úrslitum bikarkeppninnar í karlaflokki þar sem Haukar og Selfoss eigast við. Leikurinn...
- Auglýsing-

Molakaffi: Ágúst Elí, Finninn Helander, Dissinger og áhorfendur í Danmörku

Ágúst Elí Björgvinsson og félagar í Kolding unnu Tönder, 31:24, í dönsku bikarkeppninni í gærkvöld en leikið var á heimavelli Tönder. Þetta var síðasti leikur Ágústs og félaga á leiktíðinni. Bikarkeppninni verður framhaldið í haust en sigurinn í gærkvöld...

Fengu sigurlaunin afhent

Ungmennalið Aftureldingar fékk í kvöld afhent verðlaun fyrir sigur í 2. deild karla að loknum síðasta leik sínum á keppnistímabilinu. Afturelding vann ungmennalið ÍBV að Varmá í kvöld en engum sögum fer af úrslitum leiksins að öðru leyti en...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Blaðamannafélagi Íslands númer 162 og í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. ivar@handbolti.is
18175 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -