- Auglýsing -
Tveir leikir eru í dagskrá í kvöld. Annarsvegar frestaður leikur í 18. umferð á milli KA og FH og hinsvegar stendur til að leikið verði í 32-liða úrslitum bikarkeppninnar í karlaflokki þar sem Haukar og Selfoss eigast við. Leikurinn átti að fara fram í byrjun október en var þá frestað þegar sett var á bann við kappleikjum og æfingum. Eftir leikinn í Schenkerhöllinni í kvöld verður bikarkeppninni frestað til hausts.
Þegar viðureign KA og FH verður lokið eiga liðin í Olísdeild karla eftir ólokið tveimur leikjum hvert.
Olísdeild karla:
KA-heimilið: KA – FH, kl. 18 – sýndur á KAtv.
Staðan í Olísdeild karla.
Coca Cola-bikarinn, 32-liða úrslit karla:
Schenkerhöllin: Haukar – Selfoss, kl. 20 – sýndur hjá ruv.is.