- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Anton, Jónas og Kristján við dómgæslu og eftirlit

Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson dæma viðureign ungverska liðsins Pick Szeged og GOG frá Danmörku í 13. og næstsíðustu umferð Meistaradeildar Evrópu í karlaflokki í handknattleik í Pick Arena í Szeged á fimmtudagskvöld. Bæði lið eru komin áfram...

Molakaffi: Orri, Sigvaldi, Sigurjón, Árni, Elías, Viktor

Orri Freyr Þorkelsson var markahæstur leikmanna Sporting með átta mörk í 13 marka sigri meistaranna á Vitória, 40:27, í portúgölsku 1. deildinni í handknattleik í gær. Fimm marka sinna skoraði Orri Freyr úr vítaköstum.  Sporting er með fullt hús stiga...

11 stoðsendingar Hauks – mikilvæg stig hjá Arnóri – Ýmir Örn vann í Hannover

Afar góður leikur Hauks Þrastarsonar nægði ekki Rhein-Neckar Löwen til þess að vinna meistara Füchse Berlin í viðureign liðanna í Berlín í dag, lokatölur, 35:28. Haukur skoraði sex mörk og gaf 11 stoðsendingar sem tryggir að hann er áfram...

Ólafur Örn kveður eftir rúm 50 ár í dómgæslu og við eftirlitsstörf

Ólafur Örn Haraldsson handknattleiksdómari vann við sinn síðasta handboltaleik í gær þegar hann var eftirlitsmaður á úrslitaleik Hauka og Vals í bikarkeppni kvenna í handknattleik á Ásvöllum. Ólafur Örn hefur verið dómari og eftirlitsmaður á handboltaleikjum í 51 ár. Fyrstu...
- Auglýsing-

Flytur Sigvaldi Björn til Þýskalands?

Sigvaldi Björn Guðjónsson landsliðsmaður í handknattleik er orðaður við þýsku liðin Hannover-Burgdorf og Gummersbach í SportBild í dag. Sigvaldi Björn er samningsbundinn norska liðinu til ársins 2030. Hannover-Burgdorf mun vera á höttunum eftir hægri hornamanni til þess að fylla skarð...

Undankeppni EM kvenna ”26: Úrslit leikja

Undankeppni Evrópumóts kvenna í handknattleik 2026 hófst miðvikudaginn 15. október 2025 og lýkur sunnudaginn 12. apríl 2026. Leikið er í sex fjögurra liða riðlum. Tvö efstu lið hvers riðils auk fjögurra liða með bestan árangur í þriðja sæti tryggja...

Dana Björg skoraði fimm mörk fyrir Íslandsferð

Dana Björg Guðmundsdóttir sem leikur fyrir Volda og landsliðskona í handknattleik skoraði fimm mörk í góðum sigri Volda á Åsane, 35:32, í næstefstu deild norska handknattleiksins í gær. Leikið var á heimavelli Åsane-liðsins sem er í fjórða sæti. Volda...

Gunnar fyrstur til að ná bikarþrennu í karlaflokki

Gunnar Magnússon, þjálfari karlaliðs Hauka, hefur nú orðið bikarmeistari sem þjálfari þriggja mismunandi karlaliða. Hann varð einnig bikarmeistari sem þjálfari Aftureldingar 2023 og ÍBV 2015. Eftir því sem næst verður komist hefur enginn þjálfari unnið bikarkeppnina í karlaflokki með...
- Auglýsing-

Elliði Snær og Kuzmanović fóru á kostum í fyrsta sigrinum í Kiel í 20 ár

Elliði Snær Viðarsson átti stórleik þegar Gummersbach, undir stjórn Guðjóns Vals Sigurðssonar, gerði sér lítið fyrir og vann stórsigur á THW Kiel, 34:26, á heimavelli Kiel í gærkvöld. Þetta er fyrsti sigur Gummersbach á THW Kiel síðan í september...

Molakaffi: Óðinn, Tumi, Tryggvi, Einar, Birgir, Dagur, Monsi, Þorsteinn

Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði sex mörk, tvö þeirra úr vítaköstum, þegar Kadetten Schaffhausen lagði TSV St. Otmar St. Gallen, 33:30, á heimavelli í 23. umferð A-deildarinnar í Sviss í gær. Kadetten Schaffhausen er langefst í deildinni, tíu stigum á...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. Ívar er einnig forstjóri útgerðarfélagsins Staðið á sporði. Netfang: [email protected]
18858 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -