- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Daníel Freyr skellti í lás á síðustu sekúndunum – FH er komið úrslit

- Auglýsing -

FH vann Hauka eftir dramatískar lokasekúndur í fjórðu viðureign liðanna í Kuehne+Nagel höllinni á Ásvöllum í kvöld, 36:35. Haukar fengu tvö opin marktækifæri á síðustu sekúndum leiksins til þess að jafna metin og knýja fram framlengingu. Allt kom fyrir ekki. Daníel Freyr Andrésson markvörður sá til þess að Haukar skoruðu í hvorugu marktækifærinu. Fyrst varði Daníel Freyr frá Skarphéðni Ívari Einarssyni og síðan frá Jóni Ómari Gíslasyni. Sá síðarnefndi náði frákastinu eftir að Daníel Freyr varði frá Skarphéðni.


Hálfri mínútu fyrir leikslok varði Aron Rafn Eðvarðsson markvörður Hauka frá Ingvari Degi Gunnarssyni leikmanni FH úr opnu færi af línu. Ingvar Dagur hefði með marki að mestu gert út um vonir Hauka. Í stað þess opnaðist möguleiki Hauka á að skora jöfnunarmarkið í lokasókninni. Haukar voru undir allan síðari hálfleikinn, mest fimm mörk en sýndu óbilandi vilja til þess að vinna upp forskotið sem nærri hafði tekist.

Fyrsti úrslitaleikurinn eftir viku

FH mætir Val í úrslitaeinvígi um Íslandsmeistaratitilinn. Fyrsta viðureignin verður í N1-höllinni á Hlíðarenda eftir viku, föstudaginn 24. apríl. Valur og FH hafa ekki mæst í úrslitaeinvígi um Íslandsmeistaratitilinn í karlaflokki í níu ár. Valur stóð þá uppi sem Íslandsmeistari.

Ómar Darri Sigurgeirsson leikmaður FH kemur skoti á mark Hauka. Ljósmynd/J.L.Long

Níu tapaðir boltar

Haukar voru sterkari framan af en FH-ingar unnu sig inn í leikinn. Tíu mínútum fyrir leikslok var staðan jöfn, 10:10. Þá tóku við afar slæmar mínútur hjá Haukum, nánast fram til loka hálfleiksins. FH-ingar nýttu sér það til að ná fimm marka forskoti áður en leiktíminn var úti í fyrri hálfleik, 19:14. Haukar töpuðu boltanum níu sinnum í fyrri hálfleik – FH þrisvar.

FH náði mest sex marka forskoti, 27: 21, þegar 11 mínútur voru liðnar af síðari hálfleik.

Sextán mínútum fyrir leikslok tók Gunnar Magnússon þjálfari Hauka leikhlé fimm mörkum undir, 28:23. Breytti hann í 5/1 vörn og fór í sjö á sex í sókninni. Aðeins gáfu FH-ingar eftir í framhaldinu og þegar sjö mínútur voru til leiksloka var forskotið eitt mark, 32:31, FH í vil. Nær komust Haukar ekki. Jón Bjarni Ólafsson skoraði 36. mark FH þegar hálf þriðja mínúta var til leiksloka.


Mörk Hauka: Skarphéðinn Ívar Einarsson 13/6, Össur Haraldsson 8, Freyr Aronsson 5, Ólafur Ægir Ólafsson 4, Andri Fannar Elísson 2, Þráinn Orri Jónsson 2, Jón Ómar Gíslason 1.
Varin skot: Aron Rafn Eðvarðsson 8, 32% – Grétar Ari Guðjónsson 4, 17,4%.

Mörk FH: Birkir Benediktsson 5, Ómar Darri Sigurgeirsson 5, Birgir Már Birgisson 4, Einar Örn Sindrason 4, Jón Bjarni Ólafsson 4, Kristófer Máni Jónasson 4/2, Garðar Ingi Sindrason 3, Ingvar Dagur Gunnarsson 3, Gunnar Kári Bragason 2, Jakob Martin Ásgeirsson 2.
Varin skot: Jón Þórarinn Þorsteinsson 6, 19,4% – Daníel Freyr Andrésson 4, 28,6%.

Tölfræði leiksins hjá HBStatz.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -