ÍBV jafnaði metin við Hauka í undanúrslitarimmu liðanna í úrslitakeppni Olísdeildar kvenna í handknattleik í dag. Eyjaliðið skoraði fjögur mörk leiksins í Kuehne+Nagel höllinni á Ásvöllum og vann með eins marks mun, 29:28. Kristrún Ósk Hlynsdóttir skoraði sigurmarkið nokkrum sekúndum fyrir leikslok af línu eftir að hún hafði fengið sendingu frá Birnu Berg Haraldsdóttur. Birnu Berg héldu engin bönd í leiknum. Skoraði hún 16 mörk auk sjö stoðsendinga.
Með sigrinum svaraði ÍBV þar með fyrir tapið á heimavelli á miðvikudagskvöld og endurheimti heimaleikjaréttinn sem hafði gengið liðinu úr greipum.
Næsta viðureign liðanna verður í Vestmannaeyjum á miðvikudaginn klukkan 18.30. Vinna þarf þrjá leiki til þess að öðlast sæti í úrslitum Íslandsmótsins.
Haukar voru með frumkvæðið nær allan leikinn í Kuehne+Nagel höllinni. ÍBV var skrefi á eftir.
Rakel Oddný Guðmundsdóttir kom Haukum þremur mörkum yfir, 28:25, fjórum og hálfri mínútu fyrir leikslok með öðru marki Hauka í röð. Eftir það tók við öll markaskorun hjá Haukum. ÍBV gekk á lagið og jafnaði metin, 28:28. Rakel Oddný gat komið Haukum yfir 40 sekúndum fyrir leikslok en Amalia Frøland markvörður ÍBV sá við landsliðskonunni í það skiptip. ÍBV fékk nægan tíma til þess að stilla upp og leika síðustu sókn sína sem skilaði liðinu sigurmarkinu.
Mörk Hauka: Embla Steindórsdóttir 6/3, Jóhanna Margrét Sigurðardóttir 6, Rakel Oddný Guðmundsdóttir 5, Alexandra Líf Arnarsdóttir 3, Aníta Eik Jónsdóttir 2, Sara Marie Odden 2, Sonja Lind Sigsteinsdóttir 2, Thelma Melsted Björgvinsdóttir 2.
Varin skot: Sara Sif Helgadóttir 16/1, 35,6%.
Mörk ÍBV: Birna Berg Haraldsdóttir 16, Sandra Erlingsdóttir 3, Agnes Lilja Styrmisdóttir 2, Ásta Björt Júlíusdóttir 2/1, Britney Emilie Florianne Cots 2, Kristrún Ósk Hlynsdóttir 2, Alexandra Ósk Viktorsdóttir 1, Ásdís Halla Hjarðar 1.
Varin skot: Amalia Frøland 10, 31,3% – Ólöf Maren Bjarnadóttir 1, 14,3%.
Tölfræði leiksins hjá HBStatz.



