- Auglýsing -
- Hollenska handknattleikskonan Estavana Polman hefur ákveðið að leggja keppnisskóna á hilluna í sumar. Polman var um skeið ein allra besta handknattleikskona Evrópu og var burðarás hollenska landsliðsins sem varð heimsmeistari 2019.
- Eftir að Polman sleit krossband í hné sumarið 2020 og var í nærri tvö ár frá keppni varð ferill hennar aldrei sá sami og áður var. Þess utan lenti hún upp á kant við þáverandi þjálfara danska meistaraliðsins Esbjerg sem lauk með því að hún flosnaði upp hjá liðinu. Síðustu þrjú ár hefur Polman, sem verður 34 ára í sumar, leikið með Rapid Bucuresti.
- Sambýlismaður Polman er hollenski knattspyrnuleikmaðurinn fyrrverandi, Rafael van der Vaart. Sonur þeirra er átta ára.
- Spánverjinn Rubén Garabaya verður næsti landsliðsþjálfari Georgíu í handknattleik karla. Hann tekur við af Íslandsvininum Tite Kalandadze sem verið hefur landsliðsþjálfari undanfarin ár. Eftir að landslið Georgíu tapaði fyrir Ísrael í tveimur leikjum í fyrri umferð umspilsins í mars lét Kalandadze af störfum.
- Undir stjórn Kalandadze komst landslið Georgíu í lokakeppni EM 2024 og 2026. Garabaya hefur víða þjálfað síðustu ár. Hann var síðast þjálfari Eurofarm Pelister í nokkra mánuði á síðasta ári eða uns annar Íslandsvinur, Stevče Alušovski fyrrverandi þjálfari Þórs á Akureyri, tók við.
- Króatíski landsliðsmaðurinn Tin Lucin er sagður ganga til liðs við Füchse Berlin í sumar. Lucin leikur nú með RK Nexe í heimalandi sínu en liðið er komið í átta liða úrslit Evrópudeildar.
- Auglýsing -



