- Auglýsing -
- Stórleikur Elmars Erlingssonar með HSG Nordhorn-Lingen dugði liðinu ekki til sigurs í kvöld í heimsókn til HSC 2000 Coburg. Elmar skoraði átta mörk úr átta skotum og gaf einnig sjö stoðsendingar í fjögurra marka tapi, 36:32. Nordhorn-Lingen er í sjötta sæti deildarinnar þegar sex umferðir eru eftir.
- Viktor Petersen Norberg skoraði þrjú mörk og gaf þrjár stoðsendingar þegar lið hans HC Elbflorenz 2006 vann öruggan sigur á HC Oppenweiler/Backnang, neðsta liði þýsku 2. deildarinnar, í gærkvöld, 42: 28. Tjörvi Týr Gíslason var ekki í leikmannahópi HC Oppenweiler/Backnang. HC Elbflorenz 2006 er í þriðja sæti 2. deildar.
- Viktor Gísli Hallgrímsson var í marki Barcelona annan hálfleikinn í sigri liðsins á Viveros Herol BM. Nava, 42: 24, á útivelli í 26. umferð spænsku 1. deildarinnar í handknattleik í gær. Viktor Gísli varði 12 skot, 52%, í 26. sigri Barcelona í deildinni á keppnistímabilinu.
- Sveinn Jóhannsson var í sigurliði Chambéry í kvöld er liðið lagði Chartres, 34: 31. Sveinn skoraði ekki mark en var einu sinni vikið af leikvelli. Chambéry situr í 5. sæti frönsku 1. deildarinnar með 30 stig eftir 24 leiki af 30. Liðið er skammt á eftir Limoges í fjórða en það sæti veitir þátttökurétt í Evrópukeppni á næstu leiktíð.
- Auglýsing -



