- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Kært vegna meintrar hagræðingar úrslita í dönsku úrvalsdeildinni

Danska úrvalsdeildarliðið Bjerringbro-Silkeborg hefur verið kært fyrir meinta hagræðingu úrslita. Frá þessu greinir TV2 í Danmörku. Mikil umræða hefur verið í dönskum handknattleik síðustu daga eftir að Bjerringbro-Silkeborg tapaði óvænt fyrir Grindsted, 27:26, í síðustu umferð úrvalsdeildar karla síðasta...

Eduard Koksharov er látinn

Rússneski handknattleiksmaðurinn og þjálfarinn Eduard Koksharov er látinn, 50 ára að aldri. Meshkov Brest, meistaraliðið í Belarus hvar Koksharov var þjálfari er hann féll frá, segir frá óvæntu andláti Rússans. Koksharov átti að baki langan feril, lengst af sem einn...

Myndasyrpa: Fram – FH, 27:32

Eins og kom fram í gærkvöldi er FH komið í undanúrslit Olísdeildar karla í handknattleik. FH vann Fram í tvígang í átta liða úrslitum, 28:26 í Kaplakrika síðasta fimmtudag og 32:27 í Lambhagahöllinni í gærkvöld. Ekki liggur fyrir hvort...

Reynir og fleiri við kappleiki í Evrópu í kvöld

Reynir Stefánsson formaður dómaranefndar HSÍ verður eftirlitsmaður á fyrri viðureign IFK Kristianstad og króatíska liðsins RK Nexe í útsláttarkeppni Evrópudeildar karla í handknattleik í kvöld. Leikurinn fer fram í Kristianstad Arena og hefst klukkan 16.45. Þrjár viðureignir til viðbótar fara...
- Auglýsing-

Leitt að segja það en Aftureldingarmenn vildu þetta meira

„Við áttum bara ekkert skilið úr þessum leik. Þeir voru betri á öllum sviðum frá byrjun,“ sagði Gunnar Magnússon þjálfari Hauka vonsvikinn eftir fjögurra marka tap, 26:22, fyrir Aftureldingu í annarri viðureign liðanna í átta liða úrslitum úrslitakeppni Olísdeildar...

Fórum í gömlu gildin sem hafa reynst okkur best

„Þetta var örugglega einn okkar besti leikur eftir áramótin. Vörn og markvarsla var frábær,“ sagði Stefán Árnason þjálfari Aftureldingar glaður í bragði eftir að flautað var til leiksloka í Myntkauphöllinni í kvöld þar sem Mosfellingar unnu sannfærandi sigur á...

FH sópaði út Íslandsmeisturunum

FH sópaði Íslandsmeisturum Fram úr leik í átta liða úrslitum Olísdeildar í kvöld með öruggum fimm marka sigri, 32:27, í Lambhagahöllinni í Úlfarsárdal. Þar með náðu FH-ingar að svara fyrir tap fyrir Fram í undanúrslitum úrslitakeppninnar á síðasta ári...

Afturelding barðist fyrir oddaleik – Einar Baldvin var frábær

Afturelding tryggði sér oddaleik í rimmunni við Hauka í átta liða úrslitum Olísdeildar karla í handknattleik. Aftureldingarmenn unnu Hauka, 26:22, í Myntkauphöllinni að Varmá í kvöld. Oddaleikur liðanna verður á Ásvöllum á fimmtudaginn klukkan 18. Sterkur varnarleikur og frábær frammistaða...
- Auglýsing-

Leikir kvöldsins – beint á HBStatz

Tveir leikir fara fram í annarri umferð 8-liða úrslita. Afturelding og Haukar mætast í Myntkauphöllinni að Varmá klukkan 19. Hálftíma síðar eigast við Fram og FH í Lambhagahöllinni í Úlfarsárdal.Haukar unnu fyrsta leikinn við Afturelding og að sama skapi...

Haukur í liði umferðarinnar eftir stórleikinn í Mannheim

Haukur Þrastarson er í liði 26. umferðar í þýsku 1. deildinni eftir stórleik sinn með Rhein-Neckar Löwen á laugardaginn. Hann skoraði þá 15 mörk í 18 skotum og gaf auk þess átta stoðsendingar í 14 marka sigri Rhein-Neckar Löwen...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. Ívar er einnig forstjóri útgerðarfélagsins Staðið á sporði. Netfang: [email protected]
19132 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -