- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Anton er fjórfaldur meistari á sinni fyrstu leiktíð

- Auglýsing -

Óhætt er að segja að Anton Rúnarsson hafi fengið draumabyrjun sem þjálfari Íslandsmeistara Vals en hann tók við liðinu fyrir ári. Undir stjórn Antons vann Valur Meistarakeppni HSÍ í upphafi leiktíðar, bikarkeppnina í lok febrúar. Síðla í mars varð Valur deildarmeistari eftir 19 sigra í 21 viðureign og í kvöld Íslandsmeistari að loknum þriðja sigurleiknum á ÍBV í úrslitakeppni Olísdeildar.

Anton og leikmenn hans hjá Val hreinsuðu þar með upp öll gullverðlaun sem keppt var um á tímabilinu hér innanlands. Geri aðrir betur á fyrsta ári sínu sem meistaraflokksþjálfari.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -