- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Cervar er ekki sestur í helgan stein

- Auglýsing -

Hinn gamalreyndi þjálfari Lino Cervar hefur tekið við þjálfun Eurofarm Pelister í Norður-Makedóníu. Cervar er 75 ára gamall er goðsögn í heimalandi sínu Króatíu eftir að hann stýrði Króötum til sigurs á HM 2003 og á ÓL 2004, hefur ekki þjálfað um nokkurra ára skeið. Talið var að hann hefði sest í helgan stein.

Cervar þekkir vel til í Norður Makedóníu en eftir að hafa þjálfað landsliðið um nokkurt skeið á síðasta áratug auk þjálfunar hjá Metalurg Skopje.


Cervar tekur við af Stevche Alushovski, fyrrverandi þjálfara Þórs. Alushovski entist eingöngu í þrjá mánuði í starfi hjá Eurofarm Pelister sem varð meistari í Norður-Makedóníu á síðasta ári.

Margt bendir til þess að Eurofarm Pelister takist ekki að standa Vardar Skopje á sporði í kapphlaupinu um meistaratitilinn í Norður-Makedóníu á þessari leiktíð. Fyrrverandi lærisveinn Cervar hjá króatíska landsliðinu, Ivan Cupic, er þjálfari Vardar.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -