- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Arnar Freyr hefur samið við Flensburg til eins árs

- Auglýsing -

Arnar Freyr Arnarsson landsliðsmaður í handknattleik flytur sig um set innan Þýskalands í sumar frá MT Melsungen til Flensburg-Handewitt. Félagið tilkynnti um komu Arnars Freys í dag. Samningurinn er til eins árs. Arnar Freyr stendur á þrítugu og hefur leikið í fimm ár með MT Melsungen en samningur hans við félagið rennur út í sumar.


Flensburg situr í öðru sæti þýsku 1. deildarinnar þegar liðið á fjóra leiki eftir og er auk þess komið í undanúrslit Evrópudeildarinnar sem liðið vann á síðasta tímabili.

„Það er stórt skref fyrir mig að ganga til liðs við SG Flensburg-Handewitt, eitthvað sem ég er mjög stoltur af. Ég hef heyrt svo margt gott um félagið, stuðningsmennina og andrúmsloftið í kringum liðið. Ég bíð því eftir næsta tímabili með eftirvæntingu,“ segir Arnar Freyr í tilkynningu frá Flensburg.

Arnar Freyr hefur leikið 119 landsleiki en hann er í hópnum sem er í Egyptalandi þessa dagana. Arnar Freyr fór frá Fram fyrir áratug og lék í þrjú ár með IFK Kristianstad og í ár með GOG í Danmörku áður en haldið var yfir landamærin til Þýskalands sumarið 2020.

Viggó Kristjánsson hefur síðan samið við Flensburg frá og með sumrinu 2027.

Íslendingar hjá Flensburg-Handewitt:
Alexander Petersson 2007 til 2010 og aftur frá janúar 2021 og út leiktíðina um vorið.
Einar Hólmgeirsson 2007/2008.
Arnór Atlason 2012/2013.
Ólafur Gústafsson 2012 - 2014 og var í sigurliði félagsins í Meistaradeild Evrópu vorið 2014.
Teitur Örn Einarsson 2022 - 2024.
Viggó Sigurðsson tók tímabundið við þjálfun Flensburg leiktíðina 2006/2007 meðan Kent-Harry Andersson þáverandi þjálfari var í veikindaleyfi.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -