- Auglýsing -
- Portúgalski landsliðsmaðurinn Victor Iturriza hefur ákveðið að flytja á ný til Evrópu eftir eins árs úthald hjá Kuwait SC. Iturriza leikur á næstu leiktíð með Dinamo Búkarest en landi hans og landsliðsþjálfari Portúgal, Paulo Perreira, er þjálfari rúmenska meistaraliðsins.
- Erlend Mamelund, fyrrverandi landsliðsmaður Noregs í handknattleik, hefur verið ráðinn til norska úrvalsdeildarliðsins Haslum HK. Hjá félaginu verður hann bæði aðalþjálfari karlaliðsins og íþróttastjóri félagsins.
- Spánverjinn Iker Romero heldur ekki áfram þjálfun þýska liðsins Bietigheim þrátt fyrir að hafa stýrt liðinu upp í efstu deild á nýjan leik. Romero mun frá og með sumrinu einbeita sér að þjálfun karlalandsliðs Austurríkis sem hann hefur þjálfað síðasta árið samhliða starfinu hjá Bietigheim.
- Spænski handknattleiksmaðurinn Valéro Rivera hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna í sumar eftir glæsilegan feril. Rivera er 41 árs gamall. Hann lék upp yngri flokka Barcelona en lék um skeið með öðrum spænskum félagsliðum. Frá 2010 hefur Rivera leikið með franska liðinu Nantes að tveimur árum undanskildum, 2016-2018 er hann var með Barcelona.
- Auglýsing -



