- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Marel hefur skrifað undir þriggja ára samning

Unglingalandsliðsmaðurinn Marel Baldvinsson hefur skrifað undir þriggja ára samning við Fram. Marel, sem er aðeins 17 ára gamall, er uppalinn hjá Fram og hefur skarað fram úr með yngri flokkum félagsins. Hann átti stóran þátt í sigri U-liðs Fram...

Myndasyrpa: Þriðji úrslitaleikurinn – Símon tryggði sigur

Afturelding og FH mætast í fjórða sinn í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik karla að Varmá á miðvikudagskvöld. FH tryggir sér Íslandsmeistaratitilinn með sigri í leiknum. Takist Aftureldingu að vinna kemur til oddaleiks á sunnudaginn í Kaplakrika. Miðasala á...

Þetta var alvöru leikur

„Þetta var alvöru leikur," sagði Jón Bjarni Ólafsson hinn sterki línumaður FH sposkur á svip þegar handbolti.is rakst á kappann í gærkvöld á göngum Kaplakrika eftir að FH vann Aftureldingu, 27:26, í þriðja úrslitaleik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik...

Molakaffi: Óðinn, Haukur, sögulegur sigur í Póllandi

Óðinn Þór Ríkharðsson og félagar í Kadetten Schaffhausen komust í gær í forystusætið í keppninni um meistaratitilinn í Sviss þegar þeir unnu HC Kriens-Luzern, 28:26, á heimavelli. Óðinn Þór skoraði 8 mörk og var með fullkomna nýtingu.Kadetten Schaffhausen hefur...
- Auglýsing-

Teitur Örn fór heim með gullið úr Evrópudeildinni

Teitur Örn Einarsson varð í dag Evrópudeildarmeistari í handknattleik karla með Flensburg-Handewitt þegar liðið vann Füchse Berlin í úrslitaleik, 36:31. Leikurinn fór fram í Hamborg. Þetta var fyrsti sigur Flensburg í einhverju Evrópumóta félagsliða í áratug eða síðan liðið...

Myndskeið: Ótrúlegar lokasekúndur í Kaplakrika

https://www.youtube.com/watch?v=WbVXHQDYJsk Síðustu 30 sekúndurnar í leik FH og Aftureldingar voru magnaðar. Afturelding tók leikhlé marki undir þegar 23 sekúndur voru til leiksloka. Jakob Aronsson jafnaði metin, 26:26, þegar átta sekúndur voru eftir af leiknum. Sekúndurnar fáu nægðu FH-ingum til þess...

Dramatík í Kaplakrika – Sigurmark á síðustu sekúndu

FH vann dramatískan sigur á Aftureldingu í háspennuleik í Kaplakrika í kvöld, 27:26, og tók þar með yfirhöndina í einvíginu, 2:1, í leikjum talið. Símon Michael Guðjónsson skoraði sigurmarkið á allra síðustu sekúndu. Aðeins fimm sekúndum áður leit út...

Ómar Ingi skoraði 16 mörk – Magdeburg með fjögurra stiga forystu

Ómar Ingi Magnússon sýndi stórbrotna frammistöðu með SC Magdeburg í dag þegar hann skoraði 16 mörk í 30:28, sigri Magdeburg á Leipzig á heimavelli í þýsku 1. deildinni í handknattleik. Hann geigaði aðeins á fjórum skotum. Sjö marka sinna...
- Auglýsing-

Komu Skjern í opna skjöldu – Fredericia tapaði fyrsta úrslitaleiknum

Íslendingaliðið Ribe-Esbjerg lagði Skjern í fyrri viðureign liðanna um bronsverðlaunin í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik í dag, 35:31. Leikurinn fór fram í Skjern. Liðin leiða saman kappa sína á ný á miðvikudaginn í Esbjerg. Sigurinn er enn áhugaverðari í ljósi...

Frábær árangur hjá Ægi – koma heim með brons

Handknattleikslið frá Ægi í Vestmannaeyjum vann í dag til bronsverðlauna á Norðurlandamóti Special Olympics sem fram fer í Frederikshavn í Danmörku. Ægisliðið vann úrslitaleikinn um bronsið, 4:3. Að sögn Bergvins Haraldssonar þjálfara liðsins lék Ægisliðið níu leiki á mótinu. Fyrir...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. Ívar er einnig forstjóri útgerðarfélagsins Staðið á sporði. Netfang: [email protected]
18846 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -