- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Valsmenn voru ekki í vandræðum með Stjörnuna

Valur mætir ÍBV í úrslitaleik Powerade-bikarsins í handknattleik karla á laugardaginn eftir afar öruggan sigur á Stjörnunni, 32:26, í síðari undanúrslitaleik kvöldsins í Laugardalshöll. Aldrei var vafi hjá hvoru liðinu sigurinn félli skaut. Eftir kaflaskiptan fyrri hálfleik fóru Valsmenn með...

Erum komnir í úrslit – það skiptir öllu máli

„Heilt yfir var varnarleikurinn okkar frábær. Við duttum aðeins niður í síðari hálfleik þegar við létum aðeins stíga okkur út. Um leið misstum við aðeins þráðinn og töpuðum niður sjö marka forskoti niður í tvö en stóðum þetta af...

Öflugur varnarleikur fleytti Eyjamönnum í úrslit

ÍBV leikur til úrslita í Poweradebikar karla í handknattleik á laugardaginn í Laugardalshöll. ÍBV vann sannfærandi sigur á Haukum, 33:27, í undanúrslitum í kvöld eftir að hafa verið fjórum mörkum yfir í hálfleik, 17:13. Leikmenn ÍBV voru með tögl...

Bikarinn – molar í tilefni dagsins

ÍBV og Haukar eigast við í undanúrslitum Powerade-bikars karla í handknattleik í Laugardalshöll í kvöld. Flautað verður til leiks klukkan 18.00. ÍBV hefur átta sinnum komist í undanúrslit bikarkeppninnar í karlaflokki. Fyrst árið 1990. ÍBV mætti Víkingi og tapaði 29:26. Sjö...
- Auglýsing-

Hákon Daði kveður Hagen í sumar – ekkert ennþá í hendi

Eyjamaðurinn og vinstri hornamaðurinn Hákon Daði Styrmisson horfir í kringum sig þessa daga og vikur eftir að ljóst var að hann leikur ekki áfram með Eintracht Hagen þegar samningur hans við félagið rennur út í sumar. Hákon Daði staðfesti...

Dagskráin: Undanúrslit bikarsins í Laugardalshöll

Leikirnir sem beðið hefur verið eftir fara fram í kvöld þegar leikið verður til undanúrslita í Poweradebikarnum í handknattleik karla í Laugardalshöll. Sigurlið viðureignanna tveggja, annars vegar á milli ÍBV og Hauka og hinsvegar á milli Stjörnunnar og Vals,...

Molakaffi: Sigurður, Svavar, Óðinn Þór, Viktor Gísli, Hansen, Lassource

Sigurður Hjörtur Þrastarson og Svavar Ólafur Pétursson dæmdu viðureign Bjerringbro/Silkeborg og Flensburg í 4. og síðustu umferð Evrópudeildarinnar í handknattleik karla sem fram fór á Jótlandi í gær.  Óðinn Þór Ríkharðsson var markahæstur hjá Kadetten Schaffhausen þegar liðið tapaði fyrir Serbíumeisturum...

Evrópudeild karla – 16-liða úrslit – síðasta umferð, lokastaðan, framhaldið

Fjórða og síðasta umferð 16-liða úrslita Evrópudeildar karla í handknattleik fór fram í gærkvöld. Efstu lið hvers riðils taka sæti í í átta liða úrslitum. Liðin sem höfnuðu í öðru og þriðja sæti taka þátt í krossspili á milli...
- Auglýsing-

Teitur Örn og félagar flugu áfram í 8-liða úrslit

Teitur Örn Einarsson og félagar í Flensburg flugu áfram í átta liða úrslit Evrópudeildarinnar í handknattleik í kvöld þegar þeir unnu Bjerringbro/Silkeborg, 45:26, í lokaumferð riðlakeppni 16-liða úrslitum. Flensburg vann þar með öruggan sigur í 3. riðli, fjórum stigum...

Cindric er ekki í fyrsta landsliðshópi Dags

Dagur Sigurðsson nýráðinn landsliðsþjálfari Króata í handknattleik karla hefur valið 21 leikmann til undirbúnings og þátttöku í forkeppni Ólympíuleikanna sem fram fer í Hannover í Þýskalandi 14. til 17. þessa mánaðar. Fækkað verður um einn leikmann áður en farið...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. Ívar er einnig forstjóri útgerðarfélagsins Staðið á sporði. Netfang: [email protected]
18931 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -