- Auglýsing -
Stefán Rafn Sigurmannsson og Brynjólfur Snær Brynjólfsson hita upp með Haukaliðinu og eru einnig á meðal þeirra sem taldir eru upp á leikskýrslu liðsins fyrir síðari úrslitaleikinn á Íslandsmótinu í handknattleik karla sem fram fer í Schenkerhöllinni á Ásvöllum í kvöld og hefst klukkan 19.30.
Hvort þeir leika stórt eða smátt hlutverk í leiknum í kvöld kemur í ljós.
Stefán Rafn tók ekki þátt í fyrri viðureign Hauka og Vals á þriðjudaginn vegna tognunar á læri sem hann hlaut í undanúrslitaleik Hauka og Stjörnunnar fyrir viku.
Brynjólfur Snær tognaði á ökkla snemma leiks á þriðjudaginn í fyrri leik Vals og Hauka sem Valur vann með þriggja marka mun, 32:29.

- Valur vann þriðju viðureignina og leikur til úrslita
- Olís karla: Leikjadagskrá, úrslitakeppni 2026
- Þórir kallaður til leitar í Noregi
- Díana hefur verið ráðin til Fram
- Arnór og félagar hleyptu lífi í rimmuna
- Auglýsing -



