- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Valur vann þriðju viðureignina og leikur til úrslita

- Auglýsing -

Valur lagði KA í þriðja og síðasta sinn í undanúrslitum Olísdeildar karla í handknattleik í N1-höllinni í kvöld. Lokatölur, 38:34. Í hálfleik skakkaði þremur mörkum á liðunum, 19:16, Val í vil.

Valsmenn leika þar með til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn annað árið í röð. Óvíst er ennþá hvort Hafnarfjarðarliðið, FH eða Haukar, verður andstæðingur Vals. Ráðgert er að fyrsti úrslitaleikurinn verði í N1-höllinni föstudaginn 24. apríl.

FH og Hauka mætst í þriðja sinn í Kaplakrika annað kvöld. Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson eiga að flauta til leiks klukkan 19.30.


Valur var með yfirhöndina í viðureigninni í kvöld frá byrjun til enda. KA-menn náðu áhlaupum annað kastið, síðast síðla í síðari hálfleik. Munurinn var minnstur tvö mörk.

Mörk Vals: Andri Finnsson 8, Þorgils Jón Svölu Baldursson 7, Arnór Snær Óskarsson 6, Gunnar Róbertsson 4, Bjarni í Selvindi 3, Björgvin Páll Gústavsson 2, Dagur Leó Fannarsson 2, Daníel Montoro 2, Magnús Óli Magnússon 2, Allan Norðberg 1, Þorvaldur Örn Þorvaldsson 1.
Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 14.

Mörk KA: Bjarni Ófeigur Valdimarsson 10, Einar Rafn Eiðsson 6, Dagur Gautason 4, Arnór Ísak Haddsson 3, Einar Birgir Stefánsson 3, Logi Gautason 3, Patrekur Stefánsson 3, Jens Bragi Bergþórsson 1, Magnús Dagur Jónatansson 1.
Varin skot: Ágúst Elí Björgvinsson 11.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -