- Auglýsing -
- Auglýsing -

Efst á baugi

- Auglýsing -

Valur vann þriðju viðureignina og leikur til úrslita

Valur lagði KA í þriðja og síðasta sinn í undanúrslitum Olísdeildar karla í handknattleik í N1-höllinni í kvöld. Lokatölur, 38:34. Í hálfleik skakkaði þremur mörkum á liðunum, 19:16, Val í vil.Valsmenn leika þar með til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn annað...

Þórir kallaður til leitar í Noregi

Þórir Hergeirsson, fyrrverandi landsliðsþjálfari Noregs í handknattleik kvenna, hefur verið kallaður inn í hóp sem leitar að næsta landsliðsþjálfari Noregs í handknattleik karla. „Hann er gulls ígildi fyrir okkur,“ segir Erik Langerud, framkvæmdastjóri norska handknattleikssambandsins, í samtali við VG...

Díana hefur verið ráðin til Fram

Handknattleiksþjálfarinn Díana Guðjónsdóttir hefur samið við Fram um að taka við starfi aðstoðarþjálfara meistaraflokks kvenna næstu þrjú árin. Auk þess mun Díana taka við þjálfun U-liðs kvenna og 3. flokks kvenna. Árum saman hefur Díana þjálfað hjá Haukum með...
- Auglýsing -

HSÍ boðar til fundar: Samkomulag í höfn við Snorra Stein og Arnór

HSÍ hefur boðið til blaðamannafundar klukkan 14 á morgun undir yfirskriftinni; Framtíðarsýn A landsliðs karla. Samkvæmt heimildum handbolta.is verður á fundinum tilkynnt um að samningar séu í höfn við Snorra Stein Guðjónsson landsliðþjálfara karla í handknattleik og Arnór Atlason...

KA/Þór fær íslenskan markvörð frá Flint Tønsberg

KA/Þór hefur samið við Ingibjörgu Hauksdóttur markvörð. Hún kemur til Akureyrarliðsins í sumar og ætlar að standa í markinu á næstu leiktíð. Ingibjörg kemur frá norska félaginu Flint Tønsberg þar sem hún hefur staðið vaktina á milli stanganna undanfarin...

Þóra Lind og Aníta Rut áfram í Úlfarsárdal

Þóra Lind Guðmundsdóttir og Aníta Rut Eggertsdóttir, leikmenn Fram, hafa báðar skrifað undir nýja samninga við handknattleiksdeild félagsins. Samningar beggja eru til næstu tveggja ára. Þóra Lind er 18 ára vinstri hornamaður sem hefur leikið með meistaraflokki, Fram 2 í...
- Auglýsing -

Ómar Ingi valinn í lið umferðarinnar

Landsliðsmaðurinn Ómar Ingi Magnússon er á sínum stað í liði 28. umferðar þýsku 1. deildarinnar eftir að hafa átt sannkallaðan stórleik í 35:31 sigri SC Magdeburg á HC Erlangen í gær. Ómar Ingi skoraði 14 mörk, þar af átta úr...

Jóhanna Lind tekur slaginn í Olísdeildinni

Jóhanna Lind Jónasdóttir hefur skrifað undir nýjan samning við uppeldisfélag sitt HK og tekur því slaginn með liðinu í Olísdeildinni á næsta tímabili. HK vann Grill 66 deildina í vor og komst þannig upp í deild þeirra bestur. Jóhanna Lind...

Tjörvi og félagar svo gott sem fallnir – sigur hjá Elmari

Tjörvi Týr Gíslason og liðsfélagar hans í HC Oppenweiler/Backnang eru komnir langleiðina með að falla úr þýsku B-deildinni niður í C-deildina eftir enn eitt tapið um liðna helgi. Oppenweiler/Backnang er með einungis tvö stig á botni deildarinnar og hefur ekki...
- Auglýsing -

Pick Szeged svarar yfirlýsingu Gottfridsson

Ungverska félagið Pick Szeged hefur gefið út yfirlýsingu þar sem brugðist er við yfirlýsingu sænska landsliðsmannsins Jim Gottfridsson. Samningi Gottfridssons var sagt upp fyrirvaralaust og hyggst hann leita réttar síns. Svíinn reyndi sagði í yfirlýsingu sinni að Szeged hafi með...

Mattý til liðs við Aftureldingu

Mattý Rós Birgisdóttir er gengin til liðs við Aftureldingu frá Víkingi Reykjavík. Skrifaði hún undir tveggja ára samning við handknattleiksdeild Aftureldingar. Mattý Rós, sem er 21 árs hornamaður, er uppalin hjá HK en hafði leikið með Víkingi frá árinu 2023. Andrea...

Orri Freyr áfram á sigurbraut

Landsliðsmaðurinn Orri Freyr Þorkelsson og liðsfélagar hans í Sporting Lissabon unnu öruggan sigur á Águas Santas, 36:29, í annarri umferð úrslitariðils portúgölsku deildarinnar í gærkvöldi. Sporting heldur þar með toppsæti riðilsins og er fimm stigum fyrir ofan Þorstein Leó...
- Auglýsing -

Ísland í neðsta flokki þegar dregið verður í riðla EM á fimmtudag

Ísland verður í fjórða og neðsta styrkleikaflokki þegar dregið verður í riðla fyrir lokakeppni Evrópumóts kvenna í handknattleik í Katowice í Póllandi síðdegis næsta fimmtudag. Nöfn 24 þjóða verða í skálunum sem dregið verður úr og hefur þeim verið deilt...

Donni markahæstur – sigur hjá Arnóri og Jóhannesi

Kristján Örn Kristjánsson, Donni, skoraði sjö mörk og var markahæstur leikmanna Skanderborg í jafntefli við Mors-Thy, 36:36, í annarri umferð úrslitakeppni dönsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik í gær. Einnig átti Donni fjórar stoðsendingar í þessum jafna og skemmtilega leik. Skanderborg er...

Ánægður með árangurinn – mjög stoltur af stelpunum

„Ég er virkilega glaður að þetta tókst hjá okkur og er um leið mjög stoltur af stelpunum,“ sagði Arnar Pétursson landsliðsþjálfari kvenna í handknattleik þegar handbolti.is náðu aðeins á hann eftir sigurinn á Portúgal á Ásvöllum síðdegis. Sigurinn tryggði...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -