Kadetten Schaffhausen endurheimti í gærkvöld efsta sæti svissnesku efstu deildarinnar í handknattleik þegar liðið, sem er þjálfað af Aðalsteini Eyjólfssyni, vann gamla félagið sem Júlíus Jónasson lék lengi með við góðan orðstír, St Gallen, 31:25, á heimavelli sínum.
Aðalsteinn og...
Lið Vængja Júpíters er eitt nýju liðanna í Grill 66-deild karla, líkt og Hörður og Kría, sem einnig eru nýliðar, hafa sett skemmtilegan svip á deildarkeppnina, utan vallar sem innan.
Vængirnir taka upp alla leiki sína í Grill 66-deildinni...
„Við lærðum virkilega mikið á tapleiknum við Fjölni um síðustu helgi og tókum það með okkur í þennan leik. Og í raun hefði sigurinn getað orðið enn stærri en raun varð á,“ sagði Elías Már Halldórsson, þjálfari karlaliðs HK,...
„Eins og mótið hefur byrjað hjá okkur þá var þessu sigur bæði velkominn og torsóttur,“ sagði Sebastian Alexandersson, þjálfari karlaliðs Fram, glaður í bragði eftir að lið hans vann ÍR, 27:24, í lokaleik 4. umferðar Olísdeildar karla í handknattleik...
„Því miður þá tapaði betra liðið að þessu sinni. Við vorum einfaldlega mikið betra liðið í þessum leik frá upphafi til enda,“ sagði Kristinn Björgúlfsson, þjálfari ÍR, þrátt fyrir þriggja marka tap, 27:24, fyrir Fram í lokaleika 4. umferðar...
Ekkert hlé verður gert á keppni á Íslandsmótinu í handknattleik þrátt fyrir að hert verði á samkomutakmörkunum frá og með morgundeginum, mánudaginn 5. okótóber. Íþróttaviðburðir með snertingum verða á meðal þeirra atriða sem háðir verða undantekningum samkvæmt reglugerð um...
Aron Pálmarsson, leikmaður Barcelona, er í liði 3. umferðar í Meistaradeildinni í handknattleik að mati sérfræðinga Handknattleikssambands Evrópu, EHF. Aron fór á kostum þegar Barcelona vann Nantes, 35:27, í Frakklandi á fimmtudagskvöldið. Hann skorað sex mörk í sjö...
Fram vann ÍR í botnslag Olísdeildar karla í handknattleik í Framhúsinu í kvöld í lokaleik 4. umferðar, 27:24. Þetta var fyrsti sigur Fram í deildinni á leiktíðinni og er liðið nú komið með þrjú stig eins og Stjarnan í...
HK vann stórsigur á Víkingi í Grill 66-deild karla í handknattleik í Kórnum í upphafsleik 3. umferðar, 31:22. Eins og tölurnar gefa til kynna þá var aldrei spenna í leiknum. HK var með átta marka forskot í hálfleik, 15:7,...
Íslendingarnir hjá EHV Aue í þýsku 2. deildinni í handknattleik stimpluðu sig vel inn í dag þegar lið þeirra vann Rimpar Wölfe, 24:21, á heimavelli í fyrstu umferð deildarinnar. Aue var fjórum mörkum yfir að loknum fyrri hálfleik, 12:8.
Sveinbjörn...
Bikarmeistarar ÍBV unnu öruggan sigur á Þór Akureyri í næst síðasta leik 4. umferðar Olísdeildar karla í handknattleik í Íþróttahöllinni á Akureyri í dag, 34:27. ÍBV var með sex marka forskot í hálfleik, 16:10.
ÍBV er þar með komið...
Danska meistaraliðið Aalborg Håndbold vann í dag sinn sjötta leik í dönsku úrvalsdeildinni þegar það lagði Skanderborg Håndbold, 29:26, á heimavelli. Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari Álaborgarliðsins sem hefur ekki tapað leik í dönsku úrvalsdeildinni né í Meistaradeild Evrópu á...
Grétar Ari Guðjónsson hefur ekki hafið æfingar af fullum krafti og tók þar af leiðandi ekki þátt í fyrsta leik Nice í frönsku B-deildinni í handknattleik á gærkvöld. Nice sótti þá Cherboug heim og tapaði naumlega, 30:29. Grétar Ari...
Fjórðu umferð Olísdeildar karla lýkur í dag með tveimur hörkuleikjum í tveimur landshlutum. Til viðbótar þá verður tendrað upp í 3. umferð Grill 66-deildar karla þar sem keppni er ekki síður skemmtileg og spennandi en í Olísdeild karla.
Fjörið...
Ekkert lát virðist, því miður, vera á fréttum af slæmum axlarmeiðslum handknattleiksmanna. Hinn ungi og efnilegi leikmaður Hauka, Jón Karl Einarsson, verður frá keppni um ótiltekinn tíma eftir að hafa meiðst illa á öxl í leik með U-liði Hauka...