- Auglýsing -
- Auglýsing -

Fréttir

- Auglýsing -

Myndir: EMU20 – Stórsigur á Úkraínu

Íslenska landsliðið byrjaði Evrópumót 20 ára landsliða karla í Slóveníu af krafti í morgun með stórsigri á Úkraínu, 49:22, eftir að hafa verið 15 mörkum yfir í hálfleik, 28:13. Á morgun mæta íslensku piltarnar þeim pólsku klukkan 14.40....

„Strákarnir voru frábærir“

„Það er alltaf gaman og gott að vinna handboltaleiki og 27 marka munur var góður bónus,“ sagði Einar Andri Einarsson annar þjálfara U20 ára landsliðs Íslands við handbolta.is fyrir stundu eftir 49:22 sigur íslenska landsliðsins á Úkraínupiltum í upphafsleik...

Hófu EM með 27 marka sigri

Íslenska landsliðið í handknattleik byrjaði með sannkallaðri flugeldasýningu í upphafsleik sínum á Evrópumóti 20 ára landsliða karla í Tri Lilije Hall, í Laško í Slóveníu í morgun. Þeir yfirspiluðu landslið Úkraínu og unnu með 27 marka mun, 49:22, eftir...
- Auglýsing -

Molakaffi: Hlynur, Sigurður, Svavar, Hoxer, Lindberg, Guðmundur, Arnór, Einar

Hlynur Leifsson verður eftirlitsmaður á leik Færeyinga og Svisslendinga í fyrstu umferð C-riðils Evrópumóts 20 ára landsliða karla í Slóveníu klukkan 10 í dag. Þar með er ekki öll sagan sögð því Hlynur verður einnig eftirlitsmaður á leik Spánar...

Komnir til Celje – létt æfing í Laško – myndir

Leikmenn 20 ára landsliðsins í handknattleik karla komu ásamt þjálfurum og aðstoðarmönnum til Celje í Slóveníu upp úr hádeginu í dag eftir að hafa lagt af stað í gærkvöld frá Íslandi. Í fyrramálið hefst Evrópumótið sem stendur yfir til 21....

Guðmundur Bragi orðaður við Bjerringbro/Silkeborg

Handknattleiksmaðurinn Guðmundur Bragi Ástþórsson úr Haukum er samkvæmt heimildum Handkastsins á leiðinni til danska úrvalsdeildarliðsins Bjerringbro/Silkeborg. Þetta hefur handkastið samkvæmt heimildum og segir frá á X, áður Twitter í dag. Guðmundur Bragi Ástþórsson er samkvæmt heimildum Handkastsins á leiðinni til...
- Auglýsing -

Haukar stökkva yfir fyrstu umferð

Haukar sitja hjá í fyrstu umferð Evrópubikarkeppni karla í handknattleik í haust. Þeir mæta ekki til leiks fyrr en í aðra umferð sem leikin verður í síðari hluta október. Alls taka 64 lið þátt í annarri umferð. Þá verður...

FH fer rakleitt í riðlakeppnina – Valur í forkeppni Evrópudeildar

Íslandsmeistarar FH fá sæti í riðlakeppni Evrópudeildar karla í handknattleik og komast þar með hjá einni umferð í forkeppniþ Valur fór einnig beint í riðlakeppnina leiktíðina 2022/2023. Að þessu sinni verður Valur hinsvegar að taka þátt í forkeppninni ásamt...

Íslensku liðin fara beint í 64-liða úrslit

Íslandsmeistarar Vals verða í efra styrkleikaflokki en Haukar í þeim neðri þegar dregið verður í 64 liða úrslit Evrópubikarkeppni kvenna í handknattleik þriðjudaginn 16. júlí eftir viku stundvíslega klukkan 9 árdegis. Handknattleikssamband Evrópu, EHF, birti í morgun styrkleikaröðun eftir að...
- Auglýsing -

Hulda semur við Aftureldingu eftir sex ára veru á Norðurlöndum

Handknattleikskonan Hulda Dagsdóttir hefur ákveðið að leika á ný á Íslandi eftir að hafa verið í Danmörku og Noregi síðustu sex ár. Hulda hefur skrifað undir samning við Aftureldingu sem leikur í Grill 66-deildinni á næstu leiktíð. Hulda er vinstri...

Ætlum að tryggja okkur inn á næsta stórmót

https://www.youtube.com/watch?v=RVl4Cflj9_8 „Fyrst og fremst ætlum við að tryggja okkur þátttökurétt á næsta stórmót,“ segir Halldór Jóhann Sigfússon annar þjálfara U20 ára landsliðs karla í handknattleik í samtali við handbolta.is. Íslenska liðið hélt af landi brott í gærkvöld og hefur leik...

Molakaffi: Hansen og fleirum dæmdar bætur, hagnaður, vináttuleikur

Danski handknattleiksmaðurinn Mikkel Hansen er á meðal 23 danskra íþróttamanna sem vann mál sem höfðað var gegn veðmálafyrirtækinu Bet365 fyrir ólöglega notkun á ímynd þeirra í tengslum við auglýsingar veðmálafyrirtækisins. Meðal annarra þekktra danska íþróttamanna sem var í hópnum...
- Auglýsing -

Báðir markverðir Gróttu hafa róið á önnur mið

Japanski markvörðurinn Shuhei Narayama er farinn frá Gróttu og aftur heim til Japans, ef marka má skrá HSÍ yfir félagaskipti síðustu daga og vikur. Narayama kom til liðs við Gróttu fyrir síðasta tímabil og var annar helsti markvörður liðsins...

Vyakhireva seld fyrir metfé frá Vipers til Brest – sumarleyfið ónýtt

Franska handknattleiksliðið Brest Bretagne hefur keypt rússnesku handknattleikskonuna Önnu Vyakhireva frá norsku meisturunum Vipers Kristiansand fyrir metfé, alltént þegar kvenkyns handknattleiksmaður á í hlut. Kaupverðið er 170.000 evrur, jafnvirði liðlega 25 milljóna króna, eftir því sem m.a. kemur fram...

Markvörður norska landsliðsins kemur í kjölfar Viktors Gísla

Norski landsliðsmarkvörðurinn Torbjørn Bergerud kveður norska meistaraliðið Kolstad sumarið 2025 og gengur til liðs við pólsku meistarana, Wisla Plock. Þetta var staðfest í morgun. Viktor Gísli samdi við Wisla Plock í síðasta mánuði til eins árs, út leiktíðina 2025....
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -