- Auglýsing -
- Auglýsing -

Fréttir

- Auglýsing -

Gremjulegt að falla út á þennan hátt

„Sérstaklega er gremjulegt að falla út á þennan hátt, eftir frábæru byrjun hjá okkur og yfirburðastöðu eftir 20 mínútur,“ sagði Björgvin Páll Gústavsson markvörður Vals vonsvikinn þegar handbolti.is hitti hann að máli eftir að Valur tapaði fyrir Aftureldingu, 29:27,...

Fyrsti úrslitaleikurinn í Krikanum á sunnudagskvöld

Fyrsti úrslitaleikur FH og Aftureldingar um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik karla fer fram að kvöldi hvítasunnudags, sunnudaginn 19. maí og hefst klukkan 19.40. Engar upplýsingar er að fá á heimasíðu HSÍ þegar þetta er ritað upp úr klukkan 22.30 á...

Afturelding vann á Hlíðarenda – leikur til úrslita við FH

Afturelding leikur um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik karla við FH. Það liggur fyrir eftir að Aftureldingarliðið lagði Val, 29:27, í æsispennandi fjórðu viðureign liðanna í undanúrslitum í N1-höll Vals í kvöld. Afturelding vann þrjár viðureignir af fjórum.Valur var þremur mörkum...
- Auglýsing -

Dregið hefur verið í riðla á Opna Evrópumóti 16 ára landsliða

Ísland verður í riðli með Króatíu, Noregi, Færeyjum og Litáen á Opna Evrópumótinu í handknattleik kvenna sem fram fer í Partille í Svíþjóð í byrjun júlí. Dregið var í riðla í morgun. Alls taka 20 landslið þátt í mótinu sem...

Rut sterklega orðuð við Hauka

Ein allra fremsta handknattleikskona landsliðsins, Rut Arnfjörð Jónsdóttir, leikur hugsanlega með Haukum á næsta keppnistímabili. Forsvarsmenn Hauka eru sagðir hafa verið í viðræðum við Rut. Þetta hefur handbolti.is samkvæmt heimildum. Rut hefur síðustu fjögur ár leikið með KA/Þór en ákvað...

Tuttugu ára landslið karla kallað saman

Einar Andri Einarsson og Halldór Jóhann Sigfússon þjálfarar 20 ára landsliðs karla í handknattleik hafa valið hóp til undirbúnings fyrir æfingaleiki gegn Færeyjum sem leiknir verða dagana 1. – 2. júní, hér á landi. Æfingar fara fram á höfuðborgarsvæðinu en...
- Auglýsing -

Dagskráin: Fjórði leikur á þremur vikum

Loksins kemur í kvöld að fjórðu viðureign Aftureldingar og Vals í undanúrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik karla. Liðin reyna með sér á heimavelli Vals á Hlíðarenda klukkan 19.40. Þrjár vikur eru liðnar síðan fyrsti leikur liðanna var að Varmá og...

Molakaffi: Kapphlaup, Claar, meistaratitill í Sviss, Wolff

Útlit er fyrir að hart verði barist um eina lausa sætið sem eftir er af 32 á heimsmeistaramóti karla í handknattleik sem fram fer á næsta ári. Eins og áður hefur komið fram ætla Serbar að krækja í sæti....

Aldís, Jóhanna og samherjar mæta Sävehof í oddaleik í undanúrslitum

Íslendingaliðið Skara HF knúði fram oddaleik í undanúrslitaeinvíginu við IK Sävehof um sænska meistaratitilinn í kvöld með fjögurra marka sigri á heimavelli, 34:30. Hvort lið hefur þar með unnið tvo leiki í einvíginu. Skara hefur svo sannarlega komið á...
- Auglýsing -

Heimir og Patrekur kalla saman 31 pilt til æfinga

Heimir Ríkarðsson og Patrekur Jóhannesson þjálfarar U-18 ára landsliðs karla hafa valið 31 pilt til æfinga 24. – 26. maí 2024. Æft verður á höfuðborgarsvæðinu. Æfingarnar eru fyrsti liður í undirbúningi fyrir þátttöku í Evrópumeistaramóti 18 ára landsliða sem...

Ólafur klæðist búningi FH á nýjan leik

Handknattleiksmaðurinn þrautreyndi, Ólafur Gústafsson hefur ákveðið að snúa heim í heiðardalinn og skrifað undir samning við uppeldisfélag sitt, FH. Ólafur hefur síðustu fjögur ár leikið með KA eftir að hafa flutt heim frá Danmörku. Ólafur, sem er 35 ára gamall,...

Hópur frá íþróttafélaginu Ægir keppir í handbolta í Danmörku

Stífar æfingar standa yfir hjá íþróttafélaginu Ægi í Vestmannaeyjum en hópur íþróttamanna er á leið til Danmerkur að taka þátt í Idrætsfestival á vegum Special Olympics. Þar munu þau keppa bæði í handbolta og boccia. Farið verður út 23....
- Auglýsing -

Molakaffi: Landin, Vujovic, Poulsen, Portner

Danski landsliðsmarkvörðurinn Niklas Landin verður a.m.k. ekki með danska liðinu Aalborg Håndbold í fyrsta undanúrslitaleiknum um danska meistaratitilinn gegn Skjern á fimmtudaginn. Eins og kom fram á handbolti.is fyrir helgina þá varð Landin að draga sig út úr landsliðinu...

Sextán ára landslið karla sem leikur í Færeyjum hefur verið valið

Andri Sigfússon og Ásgeir Örn Hallgrímsson þjálfarar 16 ára landsliðs karla hafa valið landsliðshóp vegna tveggja æfingaleikja í Færeyjum dagana 1. og 2. júní. Æfingar fyrir ferðina fara fram á höfuðborgarsvæðinu en æfingatímar og frekari upplýsingar koma inn á...

Serbar óska eftir boðskorti á HM 2025

Handknattleikssamband Serbíu hefur sent ósk til stjórnar Alþjóða handknattleikssambandsins, IHF, að svokallað wild card, eða boðskort, komi í hlut serbneska karlalandsliðsins þegar stjórnin ákveður hver hreppir hnossið áður en dregið verður í riðla fyrir heimsmeistaramótið 2025. Dregið verður í...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -