Áhorfendamet verið slegið á heimaleik sænska landsliðsins í handknattleik karla í kvöld þegar liðið leikur við Egypta í átta liða úrslitum heimsmeistaramótsins í Tele2 Arena í Stokkhólmi. Reiknað er með að 17.000 áhorfendur verði viðstaddir. Fyrra met var sett...
Rúmenska handknattleikskonan Cristina Neagu leikmaður CSM Búkarest varð á sunnudaginn þriðja handknattleikskonan til þess að skora yfir 1.000 mörk í Meistaradeildinni í handknattleik. Neagu skoraði fyrsta mark sitt í Meistaradeildinni í október 2009.
Ungverjinn Anita Görbicz skoraði 1.016 mörk á...
Hrvoje Horvat, þjálfari króatíska karlalandsliðsins, situr undir harðri gagnrýni fyrir framkomu sína í viðtali við króatíska sjónvarpið eftir síðasta leik landsliðsins á HM í handknattleik karla.
Eftir að fyrsta spurningin í viðtalinu var borin upp hreyfði Horvat aðeins varirnar og...
Fullyrt er í staðarfjölmiðli í Kielce í Póllandi að ungverska meistaraliðið Pick Szeged hafi gert Talant Dujshebaev, þjálfara Kielce og sonum hans tveimur, Alex og Daniel, freistandi tilboð um að koma til félagsins í sumar.
Hermt er að Dujshebaev-feðgarnir...
Víðar en á Íslandi er gríðarlegur áhugi fyrir að fylgjast með heimsmeistaramótinu í handknattleik. Í Þýskalandi hefur vaknað mikill áhugi á ný meðal almennings fyrir þýska landsliðinu sem gert hefur það afar gott á HM sem nú stendur yfir...
Bjarni Ófeigur Valdimarsson lék með IFK Skövde á æfingamóti þriggja liða, Grimsrud Cup, í Halden í Noregi um nýliðna helgi. Hann skoraði sjö mörk og var markahæstur þegar Skövde vann Drammen, 33:25, eftir að hafa verið tveimur mörkum yfir í...
Heimsmeistarar Danmerkur unnu afar öruggan sigur á Egyptum í Malmö í kvöld, 30:25, og höfnuðu þar með í efsta sæti fjórða milliriðils. Danska landsliðið mætir þar með Ungverjum í átta liða úrslitum heimsmeistaramótsins í handknattleik í Stokkhólmi á miðvikudaginn....
Milliriðlakeppni heimsmeistaramótsins í handknattleik karla stendur yfir frá 18. til 23. janúar í Kraká, Gautaborg, Katowice og Malmö. Leikið verður í fjórum riðlum og komast tvö efstu lið hvers riðils áfram í átta liða úrslit sem leikin verða í...
Það kemur í hlut landsliða Chile og Túnis að mætast í úrslitaleik um hinn eftirsótta forsetabikar á heimsmeistaramótinu í handknattleik karla í Plock í Póllandi á miðvikudaginn. Bikarinn er afhentur því liði sem vinnur keppni átta neðstu liða mótsins,...
Ungverska landsliðið í handknattleik fagnaði innilega á Scandic Opala hótelinu í Gautaborg í gærkvöldi eftir að sænska landsliðið tryggði sér sigur á portúgalska landsliðinu í síðasta leik milliriðils tvö á heimsmeistaramótinu. Þar með var tryggt að ungverska landsliðið var...
Marija Jovanovic sem kvaddi ÍBV í upphafi ársins eftir eins og hálfs árs veru hefur fengið félagaskipti til Ítalíu.
Franski landsliðsmaðurinn Elohim Prandi meiddist illa á vinstri ökkla á síðustu mínútu leiks Frakka og Spánverja í milliriðlakeppninni í Kraká í...
Frakkar, Spánverjar, Svíar og Ungverjar eru komnir með sæti í átta liða úrslitum heimsmeistaramótsins í handknattleik eftir að keppni lauk í milliriðlum eitt og tvö í kvöld. Frakkar unnu Spánverja í hörkuleik í Kraká, 28:26, þar sem Frakkar sýndu...
Ekki tókst landsliði Grænhöfðaeyja að greiða leið íslenska landsliðsins í átta liða úrslit á heimsmeistaramótinu í handknattleik karla í dag. Grænhöfðeyingar töpuðu með 12 marka mun fyrir Ungverjum með 12 marka mun, 42:30, í lokaumferð milliriðlakeppninnar í Scandinavium í...
Landslið Barein, undir stjórn Arons Kristjánssonar, tapaði fyrir Egyptum með fjögurra marka mun í fyrsta leik dagsins í annarri umferð í milliriðli fjögur á heimsmeistaramótinu í handknattleik í Malmö í dag, 26:22. Egyptar eru það með áfram taplausir í...
Þrettánda umferð Olísdeildar kvenna fer fram í dag með fjórum leikjum þar sem ekkert verður gefið eftir fremur en fyrri daginn.
Eins verða leikir í Grill 66-deildum karla og kvenna. Síðast en ekki síst stendur fyrir dyrum önnur umferð í...