Portúgalska landsliðið vann það spænska, 35:29, í annarri umferð þriðja milliriðils heimsmeistaramótsins í handknattleik í dag. Þetta er afar sögulegur sigur fyrir portúgalskan handknattleik. Ekki aðeins var þetta í fyrsta sinn sem Portúgal vinnur Spán á stórmóti í handknattleik...
Heimsmeistarar Danmerkur og þýska landsliðið, undir stjórn Alfreðs Gíslasonar hafa tryggt sér sæti í átta liða úrslitum heimsmeistaramótsins í handknattleik karla. Danir eru efstir og taplausir í milliriðli eitt. Þeir unnu Sviss í gær, 39:28.Þýska landsliðið vann það ítalska...
Frakkar eru öruggir um efsta sæti í milliriðli tvö á heimsmeistaramótinu í handknattleik karla. Þeir innsigluðu efsta sætið í gærkvöld með afar öruggum sigri á Hollendingum, 35:28, í íþróttahöllinni í Varaždin í Krótaíu.
Tvö efstu liðin í milliriðli tvö...
Dagur Sigurðsson landsliðsþjálfari Króata í handknattleik karla segir það vera algjörlega úr lausu loftið gripið að hann verði næsti þjálfari þýska liðsins Flensburg en félagið er að leita að þjálfara logandi ljósi. Orðrómur þess efnis fór á flug í...
Fremsti handknattleiksmaður Noregs, Sander Sagosen, leikur ekki fleiri leiki á heimsmeistaramótinu í handknattleik. Hann meiddist í sigurleik Noregs á Spáni, 25:24, í Bærum í gærkvöld. Jonas Wille landsliðsþjálfari Noregs staðfesti í dag að ekki væri reiknað með frekari þátttöku...
Evrópumeistarar Frakklands standa vel að vígi eftir fyrstu umferð í millriðli 2 á heimsmeistaramótinu í handknattleik karla. Þeir unnu afar öruggan sigur á Ungverjum, 37:30, í Varaždin í Króatíu í gærkvöld. Ungverjar áttu aldrei möguleika í leiknum, að því...
Danir eru í sjöunda himni eftir að hafa unnið Þýskalandi með tíu marka mun í fyrstu umferð í milliriðli eitt í Jyske Bank Boxen í Herning í kvöld, 40:30. Sumir segjast hreinlega aldrei hafa séð danska landsliðið leika jafn...
Heimsmeistaramót karla í handknattleik stendur yfir í Danmörku, Noregi og í Króatíu frá 14. janúar til 2. febrúar 2025. Íslenska landsliðið verður á meðal þátttökuliða og er í G-riðli.
Fyrir neðan er leikjadagskrá, leikstaðir, og leiktímar sem eru allir miðaðir...
Dagur Sigurðsson landsliðsþjálfari Króata staðfesti í samtali við Vísir í gærkvöld að Luka Cindrić taki ekki þátt í fleiri leikjum með króatíska landsliðinu á HM vegna meiðsla. Cindrić, sem er einnig samherji Arons Pálmarssonar og Bjarka Más Elíssonar hjá...
Handknattleikssamband Norður Makedóníu verður sektað vegna óspekta stuðningsmanna karlalandsliðsins á viðureign Hollands og Norður Makedóníu í annarri umferð riðlakeppni heimsmeistaramótsins í handknattleik í Varaždin í Króatíu á föstudaginn. Smáhlutum var kastað í og að leikmönnum hollenska landsliðsins auk þessm...
Norskir handknattleiksunnendur og landsliðsmenn eru ekki með með hýrri há í kvöld eftir að landsliðið tapaði fyrir Portúgal, 31:28, í lokaumferð E-riðils í Bærum í kvöld. Norska liðið skreið engu að síður áfram í milliriðil en hefur leik án...
Aron Kristjánsson og liðsmenn hans í landsliði Barein töpuðu með minnsta mun í kvöld fyrir Argentínu, 26:25, í lokaumferð H-riðils í Zagreb Arena í kvöld. Argentína verður þar með andstæðingur Íslands í milliriðli ásamt Egyptalandi og Króatíu.
Egyptar lögðu Króata...
Greitt er fyrir birtingu þessarar greinar.
HM í handbolta er handan við hornið, og aðdáendur um land allt undirbúa sig fyrir ógleymanleg augnablik. Fyrir þá sem vilja gera eitthvað meira úr áhorfinu, hefur Oche Reykjavík kynnt nýtt tilboð sem...
Króatinn Domagoj Duvnjak tekur ekki þátt í fleiri leikjum á heimsmeistaramótinu í handknattleik karla og líklegt er að landsliðsferlinum sé lokið hjá hinum 36 ára gamla leiðtoga landsliðsins til margra ára. Danski handknattleiksmaðurinn Rasmus Boysen segir á Facebook að...
Aron Kristjánsson og liðsmenn hans í landsliði Barein leika á morgun úrslitaleik við Argentínu um sæti í milliriðli heimsmeistaramótsins. Sigurliðið fer í milliriðil en tapliðið verður að snúa sér að keppninni um forsetabikarinn, sæti 25 til 32. Ekki er...