Umspilskeppni Olísdeildar karla í handknattleik hefst í kvöld. Þetta árið eigast við Víkingur og Fjölnir. Fyrsta viðureigninin fer fram í Safamýri og verður flautað til leiks klukkan 18. Vinna þarf þrjár viðureignir í umspilinu til þess að öðlast þátttökurétt í Olísdeild karla á næsta keppnistímabili og fylgja þar með eftir HK upp í deildina. Næsti leikur liðanna fer fram í Dalhúsum í Grafarvogi á föstudagskvöld.
Úrslit í innbyrðisleikjum liðanna í Grill 66-deildinni:
7. október: Víkingur – Fjölnir, 25:25 – í Safamýri.
27. janúar: Fjölnir – Víkingur, 27:38 – í Dalhúsum.
Umspil Olísdeildar karla, 1. leikur:
Safamýri: Víkingur – Fjölnir, kl. 18 – sýndur á Víkingurtv.
2. deild karla:
Safamýri: Víkingur U – Víðir, kl. 20.
Staðan í 2. deild karla.