Íslenska landsliðið í handknattleik karla, skipað leikmönnum 21 árs og yngri hefur í fyrramálið þátttöku á heimsmeistaramótinu sem að þessu sinni fer fram í Póllandi. Ísland leikur í F-riðli ásamt landsliðum Færeyja, Rúmeníu og Norður Makedóníu. Leikið verður í Katowice. Fyrsti leikur íslenska liðsins verður gegn rúmenska landsliðinu. Flautað verður til leiks klukkan 9.45 í fyrramálið.
Leikir Íslands í F-riðli HM:
18.júní: Ísland - Rúmenía, kl. 9.45.
19.júní: Ísland - Færeyjar, kl. 9.45.
21.júní: Ísland - N-Makedónía, kl. 12.
Bjarki inn – Elís Þór út
Einar Andri Einarsson og Halldór Jóhann Sigfússon þjálfarar 21 árs landsliðs karla völdu 21. maí 16 leikmenn til þess að taka þátt í mótinu. Síðan hafa þeir gert eina breytingu á hópnum.
Bjarki Jóhannsson verðandi leikmaður FH var kallaður inn eftir að ákveðið var að Elís Þór Aðalsteinsson, ÍBV, leiki frekar með jafnöldrum sínum í 19 ára landsliðinu á HM í Egyptalandi síðar í sumar en 21 árs landsliðinu.
Reynir Þór Stefánsson gat ekki gefið kost á sér.
Á fyrsta stigi mótsins verður leikið í átta fjögurra liða riðlum. Tvö efstu lið hvers riðils komast áfram í 16-liða úrslit. Tvö neðri lið í hverjum riðli leika um sæti 17 til 32.
HM hópur 21 árs landsliðsins er skipaður eftirtöldum
Markverðir:
Ísak Steinsson, Drammen.
Breki Hrafn Árnason, Fram.
Aðrir leikmenn:
Andri Fannar Elísson, Haukum.
Birkir Snær Steinsson, Haukum.
Bjarki Jóhannsson, FH.
Eiður Rafn Valsson, Fram.
Elmar Erlingsson, HSG Nordhorn-Lingen.
Hans Jörgen Ólafsson, Stjörnunni.
Haukur Ingi Hauksson, HK.
Hinrik Hugi Heiðarsson, Haukum.
Ívar Bessi Viðarsson, ÍBV.
Össur Haraldsson, Haukum.
Sigurður Páll Matthíasson, Víkingi.
Sigurður Snær Sigurjónsson, Haukum.
Skarphéðinn Ívar Einarsson, Haukum.
Þorvaldur Örn Þorvaldsson, Val.
Riðlaskipting á HM U21 árs landsliða:
A-riðill (Płock): Noregur, Pólland, Slóvenía, Úrúgvæ.
B-riðill (Sosnowiec): Austurríki, Ungverjaland, Argentína, Brasilía.
C-riðill (Płock): Svíþjóð, Japan, Suður Kórea, Bandaríkin.
D-riðill (Sosnowiec): Portúgal, Króatía, Alsír, Kanada.
E-riðll (Katowice): Danmörk, Frakkland, Marokkó, Mexíkó.
F-riðill (Katowice): Ísland, Norður Makedónía, Rúmenía, Færeyjar.
G-riðill (Kielce): Þýskaland, Túnis, Serbía, Sviss.
H-riðill (Kielce): Spánn, Egyptaland, Barein, Sádi Arabía.
Ísland vann bronsverðlaun á HM 21 árs landsliða sem haldið fyrir tveimur árum í Grikklandi og Þýskalandi.