- Auglýsing -
Magnús Óli Magnússon náði því að skjóta Valdimar Grímsson niður úr efsta sætinu á listanum yfir markahæstu leikmenn Vals í Evrópuleikjum í handknattleik. Magnús Óli skoraði 7 mörk gegn Steaua Búkarest í sigurleiknum, 36:30, á Hlíðarenda í kvöld og hefur hann skorað 155 Evrópumörk fyrir Val, en Valdimar hafði skorað 149 mörk.
Þriðji Valsmaðurinn sem hefur rofið 100 marka múrinn er Benedikt Gunnar Óskarsson, með 117 mörk, en hann skoraði 4 mörk í kvöld.
Hér er listinn yfir þá Valsmenn sem hafa skorað flest mörk fyrir Val í Evrópukeppnum í handknattleik:
Nafn: | Mörk |
Magnús Óli Magnússon | 155 |
Valdimar Grímsson | 149 |
Benedikt Gunnar Óskarsson | 117 |
Baldvin Þorsteinsson | 97 |
Dagur Sigurðsson | 95 |
Þorbjörn Guðmundsson | 94 |
Vignir Stefánsson | 88 |
Jón Pétur Jónsson | 86 |
Brynjar Harðarson | 84 |
Jón Kristjánsson | 80 |
Jakob Sigurðsson | 75 |
Anton Rúnarsson | 74 |
Stiven Tobar Valencia | 72 |
Arnór Snær Óskarsson | 67 |
Júlíus Gunnarsson | 66 |
Ólafur Stefánsson | 62 |
Jón H. Karlsson | 60 |
Sjá einnig:
Valsmenn eru komnir í undanúrslit í Evrópu
Fyrri undanúrslitaleikur Vals verður á heimavelli
- Auglýsing -